Merki krossins - 01.01.1926, Side 31
Píslarvottar skriftasakramentisins.
Það var hinn 22. september 1825.
Uppreistarmennirnir höfðu setið um
hafnarborgina Callao í Peru næsfum
níu mánuði, en Spánverjar vörðust af
hreysti mikilli. Faðir Pétur Marielux úr
reglu hins heilaga Camillusar var liðs-
prestur hjá Spánverjum, og reyndi hann
af fremsta megni að tala í þá kjark.
En hin langvinna umsát, ásamt sjúk-
dómi og matarskorti, braut á bak aftur
allan mótspyrnuþrótt hjá mörgum varn-
armönnum.
Höfuðsmaðurinn Raymund Rodil
komst að samsæri, sem myndað hafði
verið eitt kvöld í september í því skyni,
að selja herkastalann í hendur óvinanna.
Liðsforinginn Montero gekst fyrir sam-
særinu. Tafarlaust lét Rodil varpa hon-
um ásamt félögum hans í fangelsi, en
það var ómögulegt að koma þeim til
að játa á sig nokkra sök. Samt sem
áður fyrirskipaði höfuðsmaðurinn, að
þeir skyldu allir líflátast, einmilt á þeirri
sömu stundu, sem ákveðin hafði verið
til að svíkja kastalann. Föður Pétri
voru gefnar þrjár stundir til þess að
hlýða á skriffir þeirra og búa þá undir
dauðann. Klukkan 9 um kvöldið voru
þeir allir skotnir, 13 að tölu.
En hershöfðinginn þóftist ekki ennþá
nægilega öruggur. Skriftafaðirinn, hugs-
aði hann, hlýtur nú að vita grein á öllu
þessu. Hann sendi þess vegna eftir
liðsprestinum. Þegar presturinn kom
inn til hershöfðingjans, aflæsti hann
hurðinni á eftir prestinum, til þess að
geta talað við hann án vitna og fengið
að vita alt viðvíkjandi samsærinu.
»Faðir, samsærismennirnir hafa áreið-
anlega sagt yður í skriftasakramentinu
áætlanir sínar og öll sín sambönd. í
nafni konungsins verðið þér nú að segja
mér alt. Eg heimta, að þér segið mér
frá öllu, án þess að dylja nokkurt nafn
né nokkurt atriði málsins«.
»Herra hershöfðingi«, svaraði faðir
Marielux, »mér er alveg ómögulegt að
fullnægja kröfu yðar. Mér er aldrei
heimilt að rjúfa leyndarmál skriftasakra-
mentisins. Guð forði mjer frá því að
gera það nokkru sinni, enda þótt kon-
ungurinn sjálfur byði mér það«.
Hershöfðinginn varð frávita af reiði.
Hann þreif í prestinn og æpti: »Munkur,
segðu mér alt, eða ég læt skjóta þig«.
Með sannkristilegri hógværð svaraði
faðir Marielux: »Ef Guð vill að ég deyi,
verði þá hans heilagi vilji! En engum
má ég segja frá leyndarmáli skrifta-
sakramentisins*.
»Þú vilt þá ekkert segja«, öskraði
Rodil, »þú svíkur konung þinn og mig«.
»Eg er trúr konungi mínum og sér-
hverju yfirvaldi, en enginn getur krafist
þess af mér, að ég svíki Guð minn.
Mér er algerlega ómögulegt að verða
við skipun yðar«.
Þá fanst hershöfðingjanum sér vera
nóg boðið. Hann opnaði hurðina og
kallaði: »Liðsforingi Iturbide, sendið
hingað fjóra menn með hlaðnar byssur!«
Þeir komu samstundis.
»A kné, munkur«, grenjaði hershöfð-
inginn eins og villidýr. Faðir Pétur féll
á kné; hann vissi vel hvað hann átti í
vændum, en hann þekti einnig skyldu
— 31
Merki krossins.