Merki krossins - 01.01.1926, Page 33
Júbilárið.
Alt frá upphafi kristninnar hefir nafnið
sRómaborg« vakið hjá mörgum mönn-
um kærar endurminningar og verið
nefnt með sérlegri lofningu. Rómaborg
er heilagur staður. Þar er miðdepill
kirkjunnar. Þaðan hafa Pétur postuli
og eftirmenn hans stjórnað hinni heilögu
kirkju.
Hver er sá sannkristinn maður, sem
ekki þráir að vitja hinnar heilögu borgar
og sjá hinn æruverða yfirhirði, sem
situr á Péturs stóli, og hin óteljandi
sigurmerki kirkjunnar? Það er engin
furða, að frá alda öðli hafa skarar af
pílagrímum farið til Rómaborgar. Einnig
frá Norðurlöndum réðust margir til
suðurgöngu. Til er nafnaskrá íslenzkra
suðurgöngumanna, frá klaustrinu í Eynni
auðgu í Rínarhólmum (Reichenau). Eru
þar nefndir 40 íslendingar. Þessi skrá
var rifuð um árið 1100 og hefir að
eins nöfn þeirra suðurgöngumanna,
sem sóttu til klaustursins (sbr. Dipl. Isl.
I, bls. 170). Þessar Rómaferðir hafa
haldist við til vorra daga. Einkum
var það á júbilárum, sem pílagrímar
þyrpfust til Rómaborgar. En það er
víst engum vafa bundið, að aldrei hafa
sist Rómaborg eins margir pílagrímar
á einu ári, eins og á þessu síðasta.
Árið 1900 voru pílagrímarnir rúmlega
ein miljón að tölu. I fyrra voru þeir
miklu fleiri. Eftirfarandi skýrsla, birt í
hinu franska tímariti »Rome«, gefur oss
hugmynd um þann fjölda af pílagrímum,
sem drifu til Rómaborgar í fyrra. Þessi
skýrsla er um tímabilið frá 15. desem-
ber 1924 fil 15. september 1925.
Til Rómaborgar komu á þessu tíma-
bili pílagrímalestir 261 að tölu: 119 frá
Ítalíu, 41 frá Þýzkalandi, 24 frá Frakk-
landi, 18 frá Spáni, 5 frá Belgíu, 2 frá
Hollandi, 3 frá Sviss, 3 frá Portúgal,
8 frá Englandi, 4 frá ]úgó-Slavíu, 1
frá Efri-Sílesíu, 6 frá Póllandi, 1 frá
Brasilíu, 1 frá Ástralíu, 1 frá Danmörku,
4 frá Norður-Ameríku, 2 frá Möltu.
Að vísu eru Rómaferðir nú á dögum
ekki eins erfiðar og forðum. En þessi
skrá sýnir samt, hversu mikið aðdráttar-
afl Rómaborgar er, enn þann dag í dag.
Og mörg eru dæmin sem sýna, hve
mikið kristnir menn nú á 20. öldinni
geta lagt í sclurnar.
ítalskur pílagrímaflokkur fór fófgang-
andi til Rómaborgar 78 kílómetra. —
Fjórar konur komu frá Sikiley, gang-
andi frá Reggio til Rómaborgar, ber-
fættar, og báru til skiftis 2 metra háan
róðukross, prýddan blómum.
Maður fór frá Osio hinn 15. júlí og
kom til Rómaborgar hinn 5. ágúst. Hann
hafði gengið alla leið meðfram strönd-
inni. Hann fór einnig gangandi heim.
— 33 —
Merki krossins.