Sumarblómið - 01.01.1921, Side 12

Sumarblómið - 01.01.1921, Side 12
10 Sumarblómið Ríki maðurinn og Lasarus. Sunnudagaskólakennari nokkur sagði einu sinni börnun- um í bekknum sínum söguna um ríka manninn og Lasarus. Og á eftir spurði hann drengina um söguna, til þess að fullvissa sig um, að allir hefðu fylgst með í henni. »Og hver af þessuni tveimur mönnum vilduð þið svo helst vera?« spurði hann. »Eg veit það,« svaraði einn af drengj- unum. »Eg vildi helst vera ríki maðurinn á meðan eg lifi, en eftir það vildi eg helst vera Lasarus*.---Hversu margir eru það ekki, sem hugsa líkt og þessi litli dreng- ur. Menn lifa í allskonar »vellystingum praktuglega«. í allskonar sukki og svalli; hugsa að eins um að fullnægja sínum eigin heldlegu girndum og fýsnum og hugsa aidrei um sína ódauðlegu sál né hennar eilífu velferð. Gleyma Guði, fótum troða hans heilaga orð og brjóta hans boð- orð, en ætla sér samt að erfa himnaríkis sæluvist. Hvílík fjarstæða og heimska! Hvernig getum við búist við, að uppskera fíkjur, ef við sáum þyrnum? Hver og einn hlýt- ur að sjá, að það er ómögulegt. Alveg eins er því varið með þá, sern alt sitt líf sá synd og löstum; þeir geta ómögulega erft Guðs ríki; þeirra hlutskifti verður f myrkr- inu fyrir utan, »þar sem verða mun grátur og gnístran tanna«. — Enda segir Frelsarinn: »Gott tré getur ekki borið vonda ávöxtu, ekki heldur skemt tré góða ávöxtu. Hvert það tré, sem ekki ber góðan ávöxt, er upphöggvið og því í eld kastað* (Matt. 7, 18.—19). — Vinur! Ert þú á með- al þeirra, sem lifa í burlu frá Guði og sem ert á leiðinnj

x

Sumarblómið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sumarblómið
https://timarit.is/publication/614

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.