Sumarblómið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sumarblómið - 01.01.1921, Qupperneq 17

Sumarblómið - 01.01.1921, Qupperneq 17
Sumarblömid 15 nam Grænlendingurinn staðar, greip um handlegginn á kristniboðanum og sagði: »Skoðaðu, bróðir, sér er hver fegurðin og skrautið! Ó, hversu mikill og dýrðlegur hlýtur hann þá að vera, sem hefir skapað alt þetta*. *» Attu einnig himininn? Dalamaður nokkur, það er að segja: maður einn úr Dala- héraði í Svíaríki, var einu sinni í vinnu hjá auðugum herramanni nálægt Stokkhólmi. Á skemtigöngu sinni átti hann tal við verkamann þenna, og spurði hann, hvort hann vissi, hveijum tilheyrði þessi eða hin landareign. Dalamaðurinn svaraði: »Nei, hvernig skyldi eg vita Joað?« »þá skal eg segja þér það«, sagði herramaðurinn. ^Það á enginn maður annar en eg. Já, alt«, bætti hann við, »alt, sem þú getur hér eygt hringinn í kringum þig, er eign mín«. Dalainaðurinn stóð kyr stundarkorn, stakk rek- unni niður í jörðu, tók af sér húfuna og um leið og hann benti upp í himininn, sagði hann með alvörugefni: »Hér sé eg himininn; er hann Iíka eign þín?« Hinn auðugi og hégómlegi landsdrottinn skildi sneiðina, og það varð bið á því, að hann grobbaði aftur af sinni jarðnesku velsæld.

x

Sumarblómið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sumarblómið
https://timarit.is/publication/614

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.