Melkorka - 01.05.1956, Side 4
r
„Eg sver, sver, sver —cc
Eftir Nönnu Ólafsdóttur
Öðru sinni á 5 mánuðum komst ísland í
heimsblöðin. Hið fyrra sinni er Halldór Kil]-
an Laxness hlaut bókmenntaverðlaun Nó-
bels, hið annað sinni er fregnin um viljayfir-
lýsingu Alþingis um brottflutning banda-
ríska hersins barst út um heiminn. Fregnin
um samþykkt Alþingis vakti geysi-athygli og
heimsblöðin ræddu hana frá hernaðarleg-
um, efnahagslegum, pólitískum og sálfræði-
legum sjónarmiðum. í ríkjum Atlanzhafs-
bandalagsins mun fregnin hafa vakið nokkra
furðu, því að íslenzk stjórnarvöld munu
ekki hafa Joótt þessleg á undanförnum árum,
að slíkra atgerða væri héðan að vænta. Hitt
var aftur á móti grunur um, að megn
óánægja væri ríkjandi meðal almennings hér
út af ofríki Bandaríkjanna og undirlægju-
hætti og vesalmennsku íslenzkra yfirvalda að
leiða yfir þjóðina erlenda hersetu á friðar-
tímum. Bandarískir stjórnmálamenn létu
álit sitt í ljósi við blaðamenn —■ og menn
jöfnuðu sig eftir áfallið, eins og einn blaða-
maður orðaði það, er ábyrgir aðilar töldu,
að ná mætti samkomulagi við íslenzk stjórn-
arvöld eftir kosningar. Fréttaritarar sænskra
stórblaða telja að eftir kosningar í sumar
verði slakað á kröfunni um brottflutning
hersins og hún jafnvel látin alveg niður
falla.
Eins og kunnugt er hafa 3 stjórnmála-
flokkar staðið einliuga um að ieyfa banda-
ríska hersetu hér á friðartímum, þ. e. Sjálf-
stæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og
Alþýðuflokkurinn. Fram að þessu hefur
ekki heyrzt að neinn ágreiningur um þetta
mál væri fyrir hendi milli þessara flokka og
þingmenn Sjálfstæðisflokksins tóku einmitt
fram í umræðurrí um málið á Alþingi, að
enginn slíkur ágreiningur hefði átt sér stað
og var þessu ekki mótmælt af hinum flokk-
unum tveim. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
Javí gefið þá skýringu, sem hann telur eina
mögulega, að hér sé um kosningabrellu að
ræða, þ. e. að Framsóknarflokkurinn og Al-
þýðuflokkurinn telji hersetuna svo óvinsæla
meðal fylgjenda sinna, að ekki sé vænlegt
að fara út í kosningar á sumri komanda án
þess að sýna stefnubreytingu gagnvart
bandarískri hersetu. Það hefur fyrr verið
leikið með þetta fjöregg þjóðarinnar, sjálf-
stæðið, í atkvæðaveiðaskyni eins og kom
fram 1946, er Bandaríkin höfðu um haustið
1945 sýnt þann óheyrilega ágang, að fara
fram á herstöðvar hér til 99 ára, en létu svo
málið niður falla fram yfir kosningar um
vorið 1946, en tóku þá málið upp að nýju
og fengu því framgengt með aðstoð þeirra
3 flokka, sem síðan hafa stutt kröfur Banda-
ríkjanna einhuga. Því verður ekki skellt
skollaeyrum við þeirri staðliæfingu Sjálf-
stæðisiflokksins, að viljayfirlýsingin um
brottflutning hersins sé kosningabrellan
einber. (Hann mun gerzt þekkja hugarfar
samstarfsflokkanna í Jaessu sérstaka máli).
Hitt er svo eftir að vita, hvort tekst að leika
sama leikinn við kosningarnar í sumar eins
og við kosningarnar 1946 og með jafngóðum
árangri. Því er ekki að leyna að hræddur er
maður um að það heppnist. Þá yrði gangur-
inn þessi: Fyrst er nú viljayfirlýsingin gefin
á Alþingi fyrir kosningar; í öðru lagi verður
helzt ekki minnzt á utanríkismál á kosninga-
fundum eins og erlend herseta skipti engu
máli; þá verður samkomulag um mála-
36
MELKORKA