Melkorka - 01.05.1956, Síða 5
,.Hver á sér fegra fööurland‘
myndaendurskoðun herverndarsamningsins
eftir kosningar og síðan heldur hersetan
áfram eins og ekkert liefði skeð; mjög fljótt
eftir það fer svo að berast gjafafé í einhverri
mynd frá Bandaríkjunum. Þetta er hér sett
á svið með ldiðsjón af reynslunni frá 1945-
46, a. m. k. endurtekur sagan sig alveg ná-
kvæmlega fram að þessu.
Bandarísk stjórnarblöð segja fullum fet-
um, að samkomulag við íslenzk stjórnarvöld
muni nást efíir kosningar, viljayfirlýsingin
sé aðeins herbragð til að hlunnfara kornrn-
únista i íhöndfarandi kosningum. Nú er
staðfest, af ráðherrafundi Atlanzhafsríkj-
anna að fresta muni umræðum um brott-
flutnings hersins þar til eftir kosningar á
íslandi. (Mgbl. 6. maí).
Á hinu leitinu sé efnahagsástand á íslandi
mjög slæmt og því geti bandarísk stjórnar-
völd komið ár sinni fyrir borð með dollur-
um. (Við megum svei mér vera stolt af þess-
ari einkunnargjöf). Alveg eins og fyrir kosn-
ingarnar 1946 þurfum við ekki að fara i
grafgötur um það sem koma skal eftir kosn-
ingar, ef þær fara að vilja þeirra flokka, sem
staðið hafa að hernáminu á íslandi. Við
þurfum meira að segja ekki að láta íslenzk
blöð tyggja í okkur skýringar sem kynnu að
passa í kramið. Erlend stórblöð eru e. t. v.
óvilhallari í jressu lierstöðvamáli. Og þá er
sama hvort lesin eru bandarísk, brezk eða
norðurlanda stórblöð, öll fjölluðu um sam-
þykkt Alþingis, og skýrðu hana, fyrstu dag-
ana í aprílmánuði og flest eru þau fáanleg
í Reykjavík. Hinar lireinskilnislegu túlkan-
ir stórblaðanna hafa ekki verið birtar les-
endum dagblaðanna hér nema að litlu
leyti og má af því ráða að þær muni ekki
koma saman og heim við þær skýringar,
sem almenningi hér er ætlað að láta sér
nægja.
Það skeður sjálfsagt ekki oft á laumu-
svæðum hernaðarbandalaga, að slíkur samn-
ingur sem herverndarsamningurinn milli
íslands og Bandaríkjanna — raunverulegt
feimnismál stórveldis — sé notaður sem
kosningamál, og vafalaust er það óviljaverk
að bregða þessari heimsbirtu á ofríki Banda-
ríkjanna á íslandi, en það er þá bara rök-
rétt framhald af því sem mörgum fannst
strax í upphafi undanlátsseminnar við
Bandaríkin, er Keflavíkursamningurinn
var gerður að, a. m. k. sumir stjórnmála-
flokkar hérlendir væru hreinir heimalning-
ar í mati sínu á milliríkjaskiptum, eða slík
samningsgerð óviljaverk af hendi íslenzkra
manna.
Aftur á móti lýsir það kannski mati sam-
herjanna í Atlanzhafsbandalaginu á mann-
dómi sinna íslenzku fulltrúa á Alþingi ís-
lendinga, að kvöldið eftir að nmræðum um
málið lauk á Alþingi og atkvæðagreiðslan
ein skyldi fram fara skeðu þau tíðindi, að
mættir voru í hliðarsölum Alþingis sendi-
MELKORKA
37