Melkorka - 01.05.1956, Side 6
herrar Atlanzhaísbandalagsríkjanna. Var
ætlunin að hafa áhrif á atkvæðagreiðsluna
með nærveru sinni?
Eitt er alveg víst, að ísland er mikilvæg
herstöð; skv. ummælum Ólafs Thors í Morg-
unblaðinu þýðingarmesta herstöð Atlanz-
hafsbandalagsins. Hann komst nú ekki svo
sterklega að orði þegar verið var að lokka
íslendinga inn í þetta hernaðarbandalag
á sínum tíma, því að þessi ummæli jafngilda
því að ísland yrði fyrst fyrir tortímingu
óvinarins ef til styrjaldar kæmi. Bandarískir
ráðamenn dylja það ekki, að þeim er hugar-
haldið að ísland gangi þeim ekki úr greip-
um. Það er skiljanlegt út frá hagsmunum
Bandaríkjanna. En reynsla okkar er sú, að
erlendan her getum við ekki haft í landinu
án þess að tefla öllu í tvísýnu. Við höfum
tungu og menningu að verja og hið rang-
snúna efnahagsástand á ekki sízt rót að rekja
til starfsemi á vegunr bandaríkjahers í land-
inu. Það er því alveg augljóst mál, að hags-
munir íslands og Bandaríkjanna eru gagn-
stæðir í þessu atriði.
Það eru kosningar í júní. Athygli heims-
ins hefur beinzt að þeim, en hvað um okkur
sjálf? Heimsblöðin fræða lesendur sína á
því, að með þeim kjósum við um hersetu
Bandaríkjanna og ítök þeirra hér m. a. Kan-
inn er því enginn smá-aðili í þessum kosn-
ingum, hann hefur ekki lítilla hagsmuna að
gæta í þeim! Skyldu allir átta sig á því? Og
þá er spurningin, erum við ekki alveg örugg
um sigur yfir Kananum nú þegar Framsókn-
ar- og Alþýðuflokkssamsteypan liefur boðað
stefnubreytingu gagnvart hersetunni? Sam-
anlögð Vesturlandapressan virðist ætla ann-
að. Að hér hafi verið á lofti þeir eiðar, sem í
Atómstöðinni getur.
„Sem sagt, það er ekki hægt að reiða sig
alveg á hann: ef hann sver þér eitthvað í
trúnaður ókendur, og leggur við dreingskap
sinn, þá veistu hann lýgur. Ef han nþrísver
við nafn móður sinnar þá meinar hann ofur
einfaldlega þveröfugt við það sem lrann
sver. En það sem hann segir kendur meinar
Iiann, jafnvel það sem hann sver.“
Melkorka óskar öllum lesendum sínum
GLEÐILEGS SUMARS
38 . MELKORKA