Melkorka - 01.05.1956, Qupperneq 8

Melkorka - 01.05.1956, Qupperneq 8
Austurbœjarbarnaskólinn, stœrsti skóli landsins, rúmar um 2000 börn. í fyrra minntist skólinn aldarfjórðungs afmœlis sins. Skólastjóri er Arnfinnur Jónsson söguna. Hún er frámunalega vitlaus og asnalega saman sett. Ég hef- aldrei skilið hvernig hægt er að hnoða saman öðru eins, enda hef ég liðið fyrir liana árum saman. Það er eina bótin, að enginn hefur talað um hana við mig. En þetta voru mér svo mikil vonbrigði, að ég kom ekki nálægt slíku í mörg ár. Hvað varð svo til þess að þú jórst að skrifa bœkur fyrir börn? Ég hef skrifað nokkrar bækur og fólki hefur fundizt sumar þeirra góðar, en þær eru ekki eins og fólk heldur. Fólk kallar bækur mínar barnabækur en sannleikur- inn er sá að eiginlega barnabók hef ég ekki skrifað í mörg ár. Ég hef gert nokkrar til- raunir að skrifa sögur um börn og unglinga fyrir fullorðna og þó þannig, að börn mættu lesa allt, sem stendur í þeim. Hvers vegna gerðir þú ráð fyrir þvi, að börn lœsu bcekurnar, var þér áhugaefni að þau gerðu það? Já, ég taldi mér trú um að ef foreldrunum féllu .bækurnar vel í geð myndu þeir hvetja börn sín til að lesa þær. Fyrir nokkuð mörgum árum síðan tók ég það fyrir að kynna mér bókaeign eldri barna og fékk rúmlega 100 börn til að láta mér í té bókaeign sína. í öllum þessum bókaskara, sem þarna kom fram, hittist aðeins Jón Trausti á stöku stað og fáeinir áttu eina og eina liók af íslendingasögunum. Að lang mestu leyti voru þetta þýðingar á mjög lágu stigi eins og til dæmis Með Léttfeta yfir gresjuna, Hvíti fíllinn og annað álíka lélegt og beinlínis syndsamlegt. Þetta varð til þess, að ég fór að hugsa um hvort íslenzkir ung- lingar fengjust ekki til að lesa annað. 40 MELKORKA

x

Melkorka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.