Melkorka - 01.05.1956, Side 10
Allir tala um dýrtíðina
Rabb viÖ verkamannskonu eftir Mariu Þorsteinsdóttur
Sífellt vex dýrtíðin, hundrað krónurnar,
sem entust mér til dagsins í haust eru löngu
hættar að endast, en þar eð tekjurnar hafa
ekki vaxið að sama skapi verð ég að draga
eitthvað úr neyzlu heimilisins, t. d. verða
ávextir, sem voru dagleg fæða í haust, há-
tíðamatur og annað eftir því. Það er þetta
ástand, sem er dýrtíð, þegar vörurnar hækka
örar en kaupið. Nú vil ég láta gera verkfall,
sagði ung stúlka, sem vann með mér í fyrra,
við mig í vor. Nú myndi enginn vera svo
heimskur, að hann skilji ekki nauðsynina
á því. Þetta var áður en þingrofið varð og
verkalýðurinn ákvað að freista þess að
ganga sameinaður til kosninga.
Það væri annars fróðlegt að heyra eina
rödd frá verkamannaheimili um þessi mál;
ég leit inn til verkamannskonu hér um
daginn og bað hana að láta Melkorku í té
álit sitt á þessum málum.
Finnst þér ekki dýrtíðin hafa vaxið í vor?
Jú, ég skil ekki annað en öllum finnist
það, það hækkar allt, meira að segja raf-
magnið. Til þess að finna einhverja bráða-
byrgðalausn á málefnum útgerðarinnar er
almenningur skattlagður af mestu hugvits-
semi, þannig að í hvert sinn, sem við förum
út í búð og kaupum, þó ekki sé nema ban-
ana handa börnunum, erum við að styrkja
útgerðina, líklega nálægt 25% af verðinu
rennur þangað. Við þessu væri ekkert að
segja, ef við fengjum svo einhvern ágóða
þegar útgerðinni gengur vel, en það er nú
eitthvað annað, þá eru það nú einhverjir
aðrir, sem hirða gróðann. En manni verður
öðru hverju á að hugsa livað lengi svona lag-
að geti gengið, einhverntíma kemur að því,
og það fyrr en síðar, að við höfum ekki leng-
ur að borða, og livað þá?
Hvað eruð þið mörg í heimili?
Við erum sex, dóttir mín vinnur á skrif-
stofu og borgar 400.00 kr. á mánuði heini,
og því ekki ómagi lengur.
En hvernig er það, þið eruð að byggja,
hvernig gengur það?
Jú, jú, það er alltaf verið að vinna í því,
en það er svona þegar peningana vantar,
það kemur ekki allt í einu.
Þið hafið fengið eittlivert lán, er það ekki?
Við fengum þetta lán hjá bænum þegar
við byrjuðum að byggja, annað höfum við
ekki fengið enn sem komið er, en við erum
alltaf að vona að við fáum smáíbúðarlán
úr þessum AB lánaflokki.
Hvernig stúð á að þið voruð svo heppin
að fá lán hjá bœnum þegar þið byrjuðuð að
byggja?
Húsið sem við búum í núna er hér í leyf-
isleysi og átti að víkja þegar hverfið yrði
skipulagt, við bjuggumst við að bærinn
keypti það af okkur, það hefur enn ekki
orðið, en hins vegar fengum við þetta lán,
beinlínis viðkomandi sölunni á húsinu sem
við búum í.
Er þetta hús, sem þið eruð að byggja,
smáíbuð?
Það er eiginlega raðhús, það er á tveimur
hæðum, alls sex herbergi og eldhús, það er
byggingarfélag sem er að byggja það, og eins
og ég sagði áðan mest unnið af mönnunum
sjálfum. En livað lánveitingar snertir heyrir
það undir sömu lög og smáíbúðarhúsin.
Búizt, þið við að geta flutt i það í haust?
Nei, nei, það er svo mikið eftir við það,
og þessar nýju álögur ríkisstjórnarinnar
gerðu nú ekki sízt strik í reikninginn hjá
þeim sem eru að byggja. Ég veit ekki einu
sinni um hve mörg prósent byggingarefni
42
MELKORKA