Melkorka - 01.05.1956, Page 13
Þey
mig er a3 dreyma
ef þú truflar mig
hverfur draumurinn
en ég verð eftir —
VIHBOHG DAGBJAHTSÐÓTTIR
Dýpra en raunveruleildnn
í vitund óranna
er minningin um þig
og ÓBt þína.
Hún er eina og ilmur í kvöldbiænum.
HAUST
Úrávalur blær fer um skóginn
og hvíslar í limi trjánna
‘meðan hann tínir burt
marglit laufin.
mjög danskur blær yfir því Jg hann er frá
liöfundi sjálfum. Jóhann kynntist fyrst leik-
list þegar hann kom til Kaupmannahafnar
og verk hans eru ekki einungis skrifuð á
dönsku heldur einnig í danskri tradissjón.
Galdra-Loftur er rómantískt verk og tölu-
verður glansbragur á leikritinu og Hansen
undirstrikar það kannske um of. Lokaþátt-
urinn er það, sem helzt kom fólki á óvart.
Biskuparnir rísa úr gröfum sínum í skæru
]j ósi og raddir samvizkunnar eru sungnar
bak við. Þetta leikbragð fellur skemmtilega
vel að öllu efni og rómantík verksins.
Loft sjálfan leikur Gísli Halldórsson og
fer prýðilega með hlutverkið. Einkum er
liann minnisstæður í særingaratriðunum.
Áður lief ég séð Gunnar Eyjólfsson í hlut-
verki Lofts, en þó Gísli fari gjörólíkt með
það fannst mér hann engu síður góður Loft-
ur og sannur. Steinunni þá sem Erna Sigur-
leifsdóttir túlkar gekk mér dálítið illa að
sætta mig við, en neyðist þó til að játa að
vel má gera lilutverkinu þessi skil, þótt lield-
ur kysi ég, að Steinunn væri betri mann-
eskja en hún verður í meðferð Ernu, en það
var næstum afsakanlegt að Loftur óskaði
henni dauðans, svo tókst Ernu að draga fram
leiðinlega eiginleika hjá henni. Hún gerði
Steinunni drambsama og nærri ógeðslega
í frekju sinni. Einmanaleikinn sem hún tal-
ar um, finnst manni stafa af því að hún telji
, Framh. á bls. 50
MELKORKA
45