Melkorka - 01.05.1956, Síða 20

Melkorka - 01.05.1956, Síða 20
f N ANN-MARIE SCHOLANDER: Berum bökum ríða þau og geyst á egghvössum hrygg fjallsins, þrjózkulega halda þau tökum í mislyndum stonnsveipum, örvita a£ mótspyrnunni frá hlýju dalsins tætast þau og lemja hrygglengju eykisins. Unz smaragðgrænan úða ieggur upp af ungri frjónál dalsins. Undir kvöld þveitist úr jörmunefldum örvamæli vöndull gljáandi spjóta. Skjálfandi lendar eykisins hlýna unz þær kyrrast, og um hrygg þess spennist hnakkgjörð gulls. Elías Mar þýddi. V_______________________________________________/ þylja upphátt. Anjuta sat þarna með hör- undið svartstrikað eins og það hefði verið flúrað. Henni var hrollkalt. Hún var að hugsa. Yfirleitt talaði hún mjög lítið, hún þagði alltaf og hugsaði, hugsaði. . . Á þeim 6 - 7 árum sem hún hafði flutzt milli svona herbergja hafði hún þekkt 5 pilta eins og Klotsjkov. Nú höfðu þeir allir lokið prófi, þeir voru allir orðnir að mönn- um, og þar sem þeir voru nú orðnir ráðsett- ir menn, höfðu þeir að sjálfsögðu gleymt Anjutu. Einn bjó í París, tveir voru læknar, sá fjórði var listamaður og hinn fimmti var víst bráðum orðinn prófessor. Klotsjkov var sá sjötti . . . Bráðum hafði hann líka lokið prófi og hann yrði að manni líka. Framtíðin blasti áreiðanlega við honum. Klotsjkov yrði áreiðanlega mikill maður, en nú var ástandið ömurlegt — Klotskov átti ekkert 52 tóbak, ekkert te, aðeins nokkra sykurmola. Hún varð að ljúka þessum saumum sem fyrst, færa viðskiptavininum flíkina og kaupa síðan te og tóbak fyrir 25 kópekin. Má ég koma inn, sagði einhver við dyrnar. Anjuta flýtti sér að láta ullarsjal um herð- arnar. Fetisov málari gekk inn í stofuna. Mig langar að biðja yður að gera mér greiða, sagði hann við Klotsjkov og gaut út undan sér augunum á hann. Lánið þér mér fallegu stúlkuna yðar í nokkra klukkutíma! Ég er að mála mynd, skiljið þér, og vantar fyrirmytid! Með mestu ánægju! sagði Klotsjkov. Farðu með hoitum, Anjuta. Til hvers er það, sagði Anjuta lágum rómi. Hvað er þetta? það er vegna listarinnar en ekki af neinum hégóma. Þú ert ekkert of góð til að hjálpa honum. Anjuta fór að fara í leppana. Hvað eruð þér að mála? spurði Klotsjkov. Psyke. Það er ágætt efni, en einhvern veg- inn næ ég ekki tökum á því, ég er alltaf að skipta um fyrirsætur. í gær málaði ég stúlku með bláa fætur. Hvers vegna ertu með bláa fætur, spyr ég. Það er litur úr sokkunum, segir hún. Þér þyljiðl Heppinn eruð þér að vera svona þolinmóður. Svona er læknisfræðin, dugar ekki annað en að lesa í þaula. Hm . . . Fyrirgefið mér, Klotsjkov, en hér er hræðilega sóðalegt! Það er ofboðslegt. Hvernig þá? Ég get ekki veitt mér það betra, ég fæ ekki nema tólf á mánuði frá föður mínum og ekki auðvelt að lifa kónga- lífi á því. Satt er það, sagði málarinn og gretti sig — en það má nú gera betur en þetta . . . Mennt- aður maður verður að vera hreinlátur, finnst yður það ekki? En það er eins og koma inn í gripahús, þegar maður kemur hér inn. Ekki hefur verið búið um rúmið, matar- leifar, óhreinindi . . . grautur á diskum síð- an í gær . . . svei! Þér hafið rétt að mæla, sagði lækna- MELKORKA

x

Melkorka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.