Melkorka - 01.05.1956, Page 22

Melkorka - 01.05.1956, Page 22
f "N MELKORKA kemur út .þrisvar á ári. Verð árgangsins fyrir áskrifendur er 25 krónur. í lausasölu kostar hvert hefti 10 krónur. Gjalddagi er 1. marz ár hvert. Öll bréfaviðskipti varðandi innheimtu og afgreiðslu til áskrifenda og útsölumanna utan Reykjavíkur annast þóra Vigfúsdóttir, ÞingholtsstræLi 27, Reykjavik, sími 5199. Afgreiðsla fyrir Reykjavík og nágrenni er í Bókabúð Máls og menningar, Skólavörðustíg 21. Nokkur eintök af fyrri árgöngum ritsins eru enn fáanleg. PRENTSMIÐJAN HÓLAR H'F V.__________________I__________________/ UTAN ÚR HEIMI Mæðraleyfi lengt í fjóra mánuði í Sovétríkjunum. Mæðraleyfi sem konur er vinna utan heimilis fá við barnsburð verður bráðlega lengt úr hálfum þriðja mán- Frá þessu var skýrt í Moskva á Alþjóða kvennadaginn fyrir skömmu. Hingað til hafa barnshafandi konur feng- ið frí frá störfum með fullum launum í 77 daga. Nú lengist mæðraleyfið í 112 daga. Við það geta konurnar bætt sumarleyfinu, svo að alls geta þær verið frá vinnu á fjórða mánuð án tekjumissis. Konurnar ráða því sjálf- ar, hve mikið af leyfinu þær nota fyrir barnsburðinn og hve mikið eftir hann. Dr. Maria Kovrigina, heilbrigðismálaráðherra Sovét- rikjanna, hefur skýrt frá því að verið sé að athuga mögu- leika á því að stytta vinnutíma mæðra ungra barna sem vinna utan heimilis í sex klukkutíma á dag úr sjö. Mun þetta ná til mæðra sem eiga börn innan við sjö ára ald- ur. Jafnframt því sem unnið er að bættri aðbúð mæðra og barna, er lögð áherzla á að sem flestar konur eigi þess kost að vinna utan heimilis, ef þær vilja. Sem stendur er þriðjungur tæknimenntaðs fólks í iðnaði Sovétrikj- anna konur. í hópi búfræðinga eru 40 af hundraði kon- ur. Yfir hálf önnur milljón kvenna stundar nú nám i há- skólum og öðrum framhaldsskólum í Sovétrikjunum sem veita sérmenntun. Af þeim sem tekið hafa háskóla- próf i Sovétrikjunum síðustu árin er 53% konur. Stafar það að nokkru af þvi, hversu karlmenn i þeim aldurs- flokkum týndu tölunni í styrjöldinni. þAf starfandi læknum 1 Sovétríkjunum eru 76% konur og 70% kennara í barnaskólum og æðri skólum eru kon- ur. Itcdia. Konur á þingi Italíu liafa lagt fram frumvarp til laga um að gera að skyldunámsgrein við læknaskóla að læra hina nýju aðferð til að hjálpa konum til þjáningar- lausra fæðinga. Einnig að barnshafandi konum verði veitt ókeypis námskeið nú þegar. Danmörk. Á sumri komanda ætla landssamtök danskra kvenna að hafa vikunámskeið fyrir konur sem starfa á opinber- um vettvangi, einkum í bæjar- og sveitarfélögum. Einnig geta komizt að konur, sem ætla sér í slík störf eða hafa áhuga á þeim. Þessi sömu samtök hafa stofnað nefndir í Kaupmanna- liöfn og 2 eða 3 öðrum bæjum, þar sem konum (og raun- ar körlum líka) eru veittar ókeypis ráðleggingar í hinurn ýmsu vandamálum þeirra, svo sem heilbrigðismálum, fé- lagsmálum og lögfræðilcgum vandamálum. Veita sér- fræðingar þessa aðstoð. Síðastliðinn vetur hafði deildin í Kaupmannahöfn námskeið i afgreiðslu- og skrifstofustörfum, nokkurs konar endurþjálfun fyrir konur sem höfðu áður stund- að slík störf og vildu nú taka þau upp að nýju, en höfðu komizt út úr æfingu, við giftingu eða af öðrum orsök- um. Ástralía. Landssamband kvenréttindakvenna hefur beint þeirri fyrirspurn til stjórna hinna ýmsu ríkja innan ástralska sambandsríkisins, hvaða lög giltu um lágmarksaldur við giftingu. í sumuin ríkjum var ekkert takmark sett, svo sem í Queensland og Vestur-Ástralíu. í Viktoríu og Nýju-Suður-Wales mega piltar giftast 14 ára og stúlkur 12 ára. í Suður-Ástralíu hefur aldursmarkið verið verið hækkað upp í 16 ár. Það mun þó ekki algengt að fólk giftist svo ungt sem 14 og 12 ára. Kosningaréttur kvenna Það þokast áfram að afla konum sömu réttinda og karlar hafa í hinum ýmsu þjóðfélögum. Samtök Sam- einuðu þjóðanna voru stofnsett 1945 og síðan hafa 22 ríki tekið málið fyrir til úrlausnar. Nú hafa E1 Salvador og Haiti bætzt í hóp þeirra rikja, sem veita konum full pólitísk réttindi, skv. skýrslu framkvæmdastjóra Sam- einuðu þjóðanna. í skýrslunni segir, að i 56 löndum hafi konur sömu réttindi og karlar, i 3 löndum hafa þær kosningarétt með vissum skilyrðum, i 6 lönd- um hafa konur aðeins kosningarétt og kjörgengi til bæjar- og sveitarstjórnar og i 15 löndum hafa þær alls cngin pólitísk réttindi. í Guatemala verða konur að vera læsar til þess að öðlast pólitísk réttindi. Kosningin er leynileg og skylda karlmannsins, en ekki skylda fyrir konur. Aftur á móti 54 MELKORIÍA

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.