Melkorka - 01.03.1960, Side 32
láta körlum eftir bakstur og bróderingar, svo sem eins
og um einar kosningar, fyrst í stað, en lieimta af þeim
örugg þingsæti og aðild að nefndum og ráðum.
Ég er sannfærð um að það háir okkar þjóðfélagi all
verulega, hve áhrifalitlar konur eru enn um almenn
mál. tg ber virðingu fyrir kvenréttindabaráttu, en tel
sigurstranglegast að konur skipi sér við hlið karlmann-
anna, bræðra sinna í baráttunni fyrir jafnrétti og þar
með betra þjóðfélagi.
3. Því miður er ég ekki nægilega kunnug málavöxt-
um til þess að svara spurningunni ákveðið. Veit þó að
allmikil bréfaviðskipti eiga sér stað milli kvenfélaga
hér og samstæðra félaga erlendis, og íslenzkar konur
hafa, miðað við fjarlægð og mikinn ferðakostnað, tekið
verulegan þátt í mótum og ráðstefnum kvenna erlend-
is. Gagnsemi þessarar þátttöku veltur auðvitað á full-
trúunum, sem héðan fara, hvernig Jieim tekst að miðla
öðrum af þeirri þekkingu og reynslu, sem þeir liafa
orðið aðnjótandi. Samvinna þjóða hefur vitaskuld í
sér fólgna mikla möguleika til þroska og hvatningar.
TRÚLOFUNAR-
H R I N G I R
ljósir, rauðir. — Steinhring-
ar fyrir dömur og hcrra. —
Hálsmen, armböntl, gull og
silfur. — Borðbúnaður, silf-
ur, plett. — Úr fyrir dömur
og herra, gull og stál. Teg-
undir: Marvin, Dames, Tiss-
ot, Certina, Eterna.
Laugavegi 50. — Reykjavík.
32
MELKORKA