Heilbrigðismál - 01.03.1983, Page 16

Heilbrigðismál - 01.03.1983, Page 16
þessar aðgerðir eins og við legá- stungu til sýnistöku. Fósturspeglun (fetoscopy) er ný- leg aðferð til að skoða fóstrið. Farið er með spegilslöngu (fiberoptic endoscope) gegnum kviðvegg og inn í legið og síðan er hægt að skoða útlit fóstursins. Ymis tæknileg vandamál, meðal annars gildleiki slöngunnar og tak- markað sjónsvið spegilsins, auk hættunnar á fósturláti valda því að þessi aðferð hefur ekki náð mikilli útbreiðslu enn. í völdum tilvikum getur fóstur- speglun þó verið mjög gagnleg, t.d. má renna sérstakri nál eða töng í gegnum slönguna og taka blóð eða vefjasýni úr fóstri og fylgju. Á þann hátt hefur verið hægt að greina vissa arfgenga blóðsjúkdóma (hemoglo- binopathies). Þessari aðferð hefur ekki verið beitt hér á landi enn sem komið er. í framhaldi af fósturspeglun, þar sem greina má ýmsa ytri van- skapnaði, er farið að hugsa um fóst- uraðgerðir (fetal surgery) þ.e. skurðaðgerðir á fóstri í meðgöngu. Hugsanlegt er að hægt sé að lagfæra vissa galla þannig að áhrif þeirra á önnur líffæri og líkamann í heild verði óveruleg. Tilraunir hafa farið fram á ýmsum dýrategundum, m.a. rottum, marsvínum, hundum, kind- um og öpum. Ýmsar aðgerðir eru mögulegar á fóstri hjá þessum dýra- tegundum og í sumum tilvikum, t.d. hjá öpunum, gróa skurðirnir án þess að ör myndist eftir aðgerðina. Þetta er ótvíræður kostur við fósturað- gerðirnar en fósturlátshættan virðist mikil. Sónarskoðun (uitrasonography) er aðferð sem náð hefur mikilli út- breiðslu á síðustu árum, ekki síst vegna þess að hún er ekki talin hafa neina hættu í för með sér fyrir móð- ur eða fóstur. Sónartækið sendir frá sér hljóð- bylgjur (örbylgjur) og tekur síðan við bergmáli þeirra og breytir því í mynd, líkt og dýptarmælir í skipi. Vefir líkamans valda mismiklu berg- máli eða endurkasti, en þar sem leg- vatnið endurkastar ekki örbylgjum má fá fram allgóða mynd af fóstrinu með því að senda hljóðbylgjurnar gegnum kviðvegginn og inn í legið. Þær endurkastast þá af yfirborði fóstursins og gefa mynd af útlínum þess. Nýjustu tækin geta jafnvel gef- ið hugmynd um ýmis innri líffæri fóstursins og byggingu þeirra þannig að finna megi vanskapnaði í þeim. Tækin má einnig stilla þannig að hægt sé að mæla hjartslátt fóst- ursins. Mest not af sónartækjunum, enn sem komið er, eru við að fylgjast með vexti fósturs í meðgöngu og að staðsetja fóstur og fylgju fyrir legá- stungu. Fjöldi og tegundir greinan- legra vanskapnaða fara þó stöðugt vaxandi og á sama hátt fjölgar stöð- ugt þeim vansköpnuðum, sem hægt er að útiloka. Búast má við aukinni notkun þessara tækja næstu árin eft- ir því sem þau verða betri. Nákvæm greining vanskapnaða verður hins vegar ekki möguleg nema þar sem fyrir hendi er þrautþjálfað starfsfólk og bestu tæki. Legvatnsrannsóknir á íslandi Legástungur til að greina fósturgalla hafa farið fram hér á landi síðan árið 1972. Fyrstu árin voru ástungurnar fáar og öll leg- vatnssýni voru send til rannsóknar erlendis. Þegar ástungum fór fjölg- andi varð ljóst að koma varð á fót nauðsynlegustu legvatnsrannsókn- um hérlendis. Unnið var að því í áföngum, þannig að sónartæki til fósturskoðunar kom til landsins 1976, mælingar á alfafósturpróteini hófust hér á landi árið 1977 og litn- ingarannsóknir á legvatni á árinu 1978. Síðan hefur legástungum enn fjölgað. Árið 1982 voru rannsökuð um 300 legvatnssýni, og heildarfjöld- inn frá upphafi er orðinn yfir 1400. Niðurstöður úr fyrstu 500 ástung- unum hafa verið birtar (2). í greininni kemur fram aö með þess- um aðgerðum voru á tímabilinu frá 1973 til 1980 greind ellefu fóstur með litningagalla og eitt með efna- skiptagalla. Þannig leiddu 2,4% rannsóknanna í Ijós afbrigðileg fóst- ur. Einnig kom fram að ástungan er ekki hættulaus aðgerð því að fóstur- lát, sem talin voru bein afleiðing á- stungunnar urðu hjá 5 konum eða eftir 1% aðgerðanna. Þessar tölur eru sambærilegar við það sem gerist í öðrum löndum þar sem legástungur eru gerðar. Ávinningurinn af legástungu og legvatnsrannsókn virðist greinilega meiri en áhættan þegar rannsóknin er gerð eingöngu í völdum tilvikuni. Þá er miðað við að ástunga sé ein- ungis gerð ef líkurnar á að konan gangi með gallað fóstur séu meiri en hættan á fósturláti eftir aðgerðina. Ástungurnar fara allar fram á Kvennadeild Landspítalans þar sem þjálfað starfsfólk annast þær. Þar hefur einnig verið komið á fót erfða- ráðgjöf þar sem verðandi foreldrar geta fengið upplýsingar og aðstoð við að meta líkurnar á því að eiga á hættu að eignast börn með arfgenga sjúkdóma og hvaða aðgerðir eru hugsanlegar til að greina þá. Þessi ráðgjöf hófst í janúar 1982, en hana annast nú barnalæknir sem er sér- menntaður í meðfæddum sjúk- dómum. Ljóst er að fjölmarga meðfædda sjúkdóma og galla er hægt að greina með viðeigandi aðgerðum og rann- sóknum á fósturskeiði. Ennþá eru margar þessara aðgerða svo áhættu- samar að ekki er hægt að beita þeim við allar þunganir en verulegar fram- farir hafa þó orðið á þessu sviði. Þær ábendingar (indications), sem taldar eru réttlæta legástungu til fósturgreiningar, þannig að áhættan við aðgerðina sé minni en hugsan- legur ávinningur, eru eftirfarandi: 16 HEILBRIGÐISMÁL 1/1983

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.