Heilbrigðismál - 01.03.1983, Qupperneq 23

Heilbrigðismál - 01.03.1983, Qupperneq 23
Sjálfskönnun brjóstanna Besti tíminn fyrir konur til að skoða brjóstin er strax að lokinni tíðablæðingu, en annars einu sinni í mánuði fyrir þær konur sem hættar eru að hafa á klæðum eða hafa óreglulegar blæðingar. Sjálfskoðun er best að fram- kvæma þannig að konan virði brjóst- in fyrir sér í spegli, beri saman stærð og lögun þeirra, gefi gaum að upp- hækkunum á yfirborði brjóstanna og hugsanlegum inndrætti í húð eða á brjóstvörtum. Sumar konur hafa inndregnar vörtur frá unga aldri eða eftir fyrstu fæðingu og er það þá meinlaust fyrirbæri. Inndrátt í húð eða brjóstvörtur sem ekki greinast við fyrstu sýn, er stundum hægt að fá fram með því að krækja saman lóf- unum, setja hendur á hnakka og spenna brjóstvöðvana. Séu til staðar strengir sem binda húðina við und- irlagið þá dregst hún inn á við. Við þreifingu brjóstanna er best að konan liggi á bakinu með kodda eða púða undir herðablaðinu og hún þreifi síðan brjóstið kerfisbundið, byrji í handarkrikanum vinstra megin og síðan í hring með gómn- um, létt með opnum lófa, og fari þannig höndum um allt yfirborð kirt- ilsins. Bent skal á að þreifa sérstak- lega vandlega efri hliðarfjórðung brjóstanna út í handarkrikana báð- um megin, því að á þeim svæðum finnast nær tvö af hverjum þremur brjóstakrabbameinum. Þegar búið er að þreifa yfirborð brjóstanna vand- lega á að þreifa með þéttara gripi gegnum kirtilinn, og hafa í huga að miðsvæðis þar sem kirtillinn er þykk- astur þarf fastara átak til að finna hugsanlega hnúta. Að lokum er rétt að mjólka brjóstin nokkrum sinnum til þess að ganga úr skugga um hvort vessi sé í brjóstgöngunum. Þótt út komi ljós mjólkurlitaður vökvi úr brjóstunum er það meinlaust fyrirbæri. Sé hann aftur á móti dökkur eða blóðlitaður gefur það alltaf tilefni til frekari rannsóknar. Talið er að við venjulegar aðstæð- ur hafi konan möguleika á því að greina hnút sem náð hefur eins til tveggja sentimetra stærð í þvermál. HEILBRIGÐISMÁL 1/1983 23

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.