Heilbrigðismál - 01.03.1983, Blaðsíða 33
Páll Sigurjónsson forstjóri íslensks
verktaks hf. tekur við átta milljón
króna ávísun úr hendi Hjartar Hjart-
arsonar forstjóra, gjaldkera stjórnar
Krabbameinsfélags íslands. Gengið
var frá kaupum félagsins á 2600 fer-
metra húsi að Reykjanesbraut 8 og var
það afhent tilbúið undir tréverk.
Fyrsti hluti kaupverðsins var greiddur
4. febrúar og þá var þessi mynd tekin.
Síðar keypti Krabbameinsfélagið
einnig samliggjandi lóð með sam-
þykktum teikningum af 2000 fermetra
húsi. Kaupverð húss og lóðar var 15,6
milljónir króna.
krabbameinsvarnir. Sérstök áhersla
verður lögð á fræðslu um forvarnir
við krabbameini. Slík námskeið
verða væntanlega einnig á boðstól-
um fyrir félög og fyrirtæki.
Tveir nýir bæklingar voru gefnir
út á starfsárinu, „Krabbamein í vör,
munni og nefholi" eftir Stefán
Skaftason yfirlækni og „Krabbamein
í eistum" eftir Geir Ólafsson lækni.
Fimm áður útkomnir bæklingar voru
endurprentaðir. Unnið var að bækl-
ingi með leiðbeiningum um endur-
þjálfun fyrir konur sem brjóst hefur
verið tekið af, en einnig er væntan-
legur bæklingur um krabbamein í
eggjastokkum. Tvívegis þurfti að
endurprenta leiðbeiningaritið „Ekki
fórn heldur frelsun" vegna mikillar
eftirspurnar frá fólki sem vildi hætta
að reykja. Öll fræðslurit Krabba-
meinsfélagsins eiga að liggja frammi
á heilsugæslustöðvum.
Út komu þrjú tölublöð af Tak-
marki. Var því eins og áður dreift
ókeypis til grunnskólanema um land
allt og ýmissa annarra. Upplag Tak-
marks er 30 þúsund eintök.
Árgjald félagsins til Krabbameins-
félags íslands og framlag til bygging-
arsjóðs félagsins nam á árinu samtals
tæplega 2,4 millj. kr. Að langmestu
leyti er þar um að ræða tekjur af
Happdrætti Krabbameinsfélagsins
en einnig nokkuð gjafafé.
Formaður Krabbameinsfélags
Reykjavíkur er Tómas Árni Jónas-
son læknir en framkvæmdastjóri fé-
lagsins er Þorvarður Örnólfsson.
Á aðalfundi Krabbameinsfélags
Reykjavíkur í mars voru samþykktar
ályktanir um aðstöðu til krabba-
meinslækninga og um stuðning við
frumvarp til laga um tóbaksvarnir.
Þ. Ö.
Krabbameinsfélag
Suðurnesja:
Eitt þúsund
nýir félagar
Síðar á þessu ári verða 30 ár liðin
síðan „Krabbameinsvörn Keflavíkur
og nágrennis“ var stofnuð, en það
var 15. nóvember 1953. Nafni fé-
lagsins hefur nýlega verið breytt í
„Krabbameinsfélag Suðurnesja" og
jafnframt unnið að söfnun nýrra fé-
laga. Fyrir fjórum árum tók Eyþór
Þórðarson við formennsku og voru
félagsmenn þá 42, en þegar aðal-
fundur félagsins var haldinn nú í
apríl voru félagsmenn orðnir 1042.
Þar með er þetta þriðja fjöl-
mennasta aðildarfélag Krabba-
meinsfélags íslands.
Undanfarin ár hefur Krabba-
meinsfélag Suðurnesja haldið
fjölmarga fræðslufundi og hafa þeir
stundum verið í framhaldi af fundum
Rotaryklúbbs Keflavíkur. í tilefni af
afmælisárinu hefur klúbburinn nú
ákveðið að gerast formlegur vernd-
ari félagsins, enda átti hann frum-
kvæði að stofnun þessa félags á sín-
um tíma. í tengslum við fræðslustarf-
semina má geta þess að félagsmenn
Krabbameinsfélags Suðurnesja fá
send reglulega „Fræðslurit Krabba-
meinsfélagsins".
Á síðasta starfsári beitti félagið
sér fyrir því að minningarkort
Krabbameinsfélagsins yrðu seld í öll-
um pósthúsum á Suðurnesjum og í
apótekinu í Keflavík. Var hvatt til
aukinnar notkunar á þessum kortum
og settar upp auglýsingar á sölustöð-
unum. Jókst salan mikið og voru
tekjur af sölu minningakortanna um
20 þúsund krónur á síðasta ári.
í samvinnu við heilbrigðisyfirvöld
á Suðurnesjum hefur félagið kannað
Reyklaus Norðurlönd
um næstu aldamót
Á vísindaráðstefnu Norrœna krabbameinssambandsins í Uleáborg í
Finnlandi á síðastliðnu sumri var fjallað um sambandið milli tóbaks-
reykinga og krabbameins. Fram kom að rekja mœtti fjórðung allra
krabbameina til reykinga. Bent var á að raunhœfasta leiðin til að fœkka
þeim krabbameinum vœri sú að vinna gegn reykingum með margþœttu
átaki þar sem saman fœri heilbrigðisfrœðsla með markvissri
upplýsingastarfsemi, aðstoð við að hœtta að reykja, verðlagning við
það miðuð að draga úr neyslu, og lagaúrrœði svo sem algert bann við
tóbaksauglýsingum og reglur um reyklaust umhverfi. Ráðstefnan á-
lyktaði að stefna bœri að því að Norðurlönd yrðu reyklaus um ncestu
aldamót.
Aðalfundur Krabbameinsfélags íslands, haldinn 29. apríl, 1983, tók
eindregið undir þetta álit vísindaráðstefnunar og ályktun hennar.
Leyfði fundurinn sér að heita á ríkisstjórn íslands og Alþingi að stefna
þegar t stað að því marki að land okkar verði orðið reyklaust árið 2000.
íþví sambandi lýsti fundurinn fyllsta stuðningi við sljórnarfrumvarp
til nýrra tóbaksvarnalaga sem lagt var fyrir Alþingi í vetur og vœnti þess
að það verði að lögum hið allra fyrsta.
HEILBRIGÐISMÁl 1/1983 33