Heilbrigðismál - 01.03.1983, Síða 34
möguleika á að farið verði af stað
með hópskoðun að leghálskrabba-
meini. Síðustu ár hafa konur af
þessu landssvæði orðið að sækja
slíka þjónustu til Reykjavíkur en
fyrir tilstilli félagsins eru skoðanir nú
hafnar í Grindavík og til stendur að
hefja leitarstarf í Keflavík á næsta
ári.
A fundum Krabbameinsfélags
Suðurnesja hefur verið rætt um að
félagið kæmi sér upp aðstöðu fyrir
félagslega þjónustu við krabba-
meinssjúklinga.
Eyþór Þórðarson vakti máls á því
á aðalfundi Krabbameinsfélags ís-
lands í vor, að aðildarfélögin þyrftu
að taka mið af þeim breytingum,
sem orðið hefðu á þjóðfélaginu síð-
ustu ár og finna farveg fyrir aukna
krabbameinsfræðslu. Jafnframt væri
æskilegt að landssamtökin reyndu að
koma slíkri fræðslu í auknum mæli
inn í ríkisfjölmiðlana. —jr.
Krabbameinsfélag
Austur-Húnavatnssýslu:
Heilsugæslu-
stöðin tekur
við leitinni
Síðan 1968 hefur félagið skipulagt
leit að krabbameini meðal kvenna á
félagssvæðinu. Hefur mætingin orðið
betri en annars staðar á landinu. Frá
upphafi hafa 94% kvenna á aldrin-
um 25—69 ára komið í skoðun, þar
af 91% síðustu fimm árin. Á þessu
ári verður sú breyting á fyrirkomu-
lagi leitarinnar að hún verður á veg-
um heilsugæslustöðvarinnar, en að
vísu í samvinnu við Leitarstöð
Krabbameinsfélags íslands. Að sögn
Sigursteins Guðmundssonar læknis,
formanns Krabbameinsfélags
Austur-Húnavatnssýslu, er þetta
eðlileg afleiðing þess að lög um
heilbrigðisþjónustu eru að taka til æ
fleiri þátta. Þegar krabbameinsfé-
lögin úti á landi voru stofnuð var
enginn annar aðili sem gat tekið að
sér slíka leit, en ákvæði um sjúk-
dómaleit og hópskoðanir eru nú
komin í áðurnefnd lög.
Að því er varðar verkefni krabba-
meinsfélaganna segir Sigursteinn að
þau þurfi að beina kröftum sínum í
ríkari mæli að fræðslustarfi. Hún-
vetnska félagið hefur skipulagt
heimsóknir í alla grunnskóla sýsl-
unnar undanfarna vetur. Þá hefur
félagið beitt sér fyrir flutningi al-
mennra fræðsluerinda um krabba-
mein og krabbameinsvarnir, m.a. í
tengslum við aðalfundi félagsins.
Félagsmenn í Krabbameinsfélagi
Austur-Húnavatnssýslu eru nú 836.
Félagið hefur notið dyggilegrar að-
stoðar kvenfélaga í hreppum sýsl-
unnar á liðnum árum.
Á félagssvæði Krabbameinsfélags
Austur-Húnavatnssýslu söfnuðust
85 krónur á hvern íbúa í „Þjóðará-
taki gegn krabbameini" á síðasta
hausti. Það er langt yfir landsmeðal-
tali, sem var 55 krónur. —jr.
Vinningar í
vorhappdrættinu
Dregið var í vorhappdrætti
Krabbameinsfélagsins 17. júní 1983.
Fyrsti vinningurinn, Audi 100 bif-
reið, kom á miða nr. 95430, annar
vinningurinn, Nissan Sunny Coupé
GL, kom á miða nr. 148436 og bif-
reið að eigin vali fyrir 200 þúsund
krónur kom á miða nr. 45067. Ferðir
fyrir 30 þúsund krónur komu á miða
númer: 12252, 22753, 55419, 57428,
70179, 146305 og 154902.
Krabbameinsfélagið þakkar lands-
mönnum veittan stuðning.
Hugsarðu vel
um heilsuna?
Tímaritið HEILBRIGÐISMÁL, sem áður hét „Fréttabréf um
heilbrigðismál", hefur nú komið út i þrjá áratugi. í ritinu er
fjallað um ýmis svið heilbrigðismála en megin áherslan er
lögð á upplýsingar um ráðstafanir til að koma í veg fyrir
sjúkdóma eða greina þá á byrjunarstigi. Þetta er eina
almenna heilbrigðistimaritið sem gefið er út hér á landi og
er niunda mest lesna timarit landsins.
Áskriftargjaldið árið 1983 er 180 krónur fyrir fjögur vönduð
tölublöð. Verður það innheimt með giróseðli.
Undirritaður óskar eftir að gerast áskrifandi að tímaritinu
HEILBRIGÐISMÁL:
Nafnnúmer Fæóingardagur og ár
Nafn
Heimili
Póstnúmer Póstdreifingarstoö/staóur
Áskriftarpöntun má skrifa í reitina hér að ofan og senda til Krabba-
meinsfélagsins, Pósthólf 523, 121 Reykjavík. Einnig er hægt að
panta áskrift í síma 16947.
34 HEILBRIGÐISMÁL 1/1983