Heilbrigðismál - 01.03.1992, Síða 5

Heilbrigðismál - 01.03.1992, Síða 5
ÍSLANDSBANKI Hundruð vinnustaða eru reyklausir - en margir þurfa enn að þola tóbaksmengað loft Reykingar eru leyfðar í mat- eða kaffistofu hjá 567o þeirra sem vinna utan heimilis. Þetta kom fram í könnun sem Hagvangur geröi fyrir Tóbaksvarnanefnd í maí. I könnuninni var einnig spurt hvort reykingar væru leyfðar á því svæði þar sem fólk vinnur og svör- uðu 43% því játandi. 'Ástandið virðist vera miklu betra á vinnu- svæðum kvenna en karla. Þessar niðurstöður sýna að enn er langt í land að tryggt sé að sér- hver starfsmaður njóti þess sjálf- sagða réttar að anda að sér lofti ómenguðu af tóbaksreyk á vinnu- stað sínum. Tóbaksvarnir á vinnustöðum voru viðfangsefni á alþjóðlega tóbaksvarnadeginum í ár, 31. maí. í ávarpi í tilefni dagsins sagði Hiroshi Nakajama, framkvæmda- stjóri Alþjóða heilbrigðisstofnunar- innar, að ekki sé hægt að sætta sig við að þeir sem eru að vinna fyrir nauðþurftum sínum séu látnir þola aukið álag og hættu vegna til- gangslauss og hættulegs ávana. Tóbaksvarnanefnd sendi út fræðslugögn til fjölmargra vinnu- staða og bauðst til að senda reyk- lausum vinnustöðum sérstök við- urkenningarskjöl. Nú hafa hátt á annað hundrað staðfestingar borist um vinnustaði þar sem ekki er reykt. Meöal þessara reyklausu staða eru: Bræðurnir Ormsson, Máttur, Nýsmíði, Radíóbúðin, Tennis- og badmintonfélag Reykja- víkur og Utilíf í Reykjavík, Delta í Hafnarfirði, Heilsugæslustöðin á Isafirði, Mjólkursamlagið á Blönduósi, Sæplast á Dalvík, Bæjarskrifstofan á Akureyri og Framhaldsskólinn á Húsavík. -jr. Stefnt að reyklausum Islandsbanka Stjórnendur íslandsbanka og starfsmannafélags bankans hafa ákveðið að stefna að því að bankinn og dótturfyrirtæki hans Kjartan Magnússon læknir ræð- ir við starfsfólk Islandsbanka í Bankastræti í Reykjavík um skaðsemi reykinga og stefnuna um reyklausan banka. verði orðin reyklaus ekki síðar en um næstu aldamót. Ákvörð- unin var tekin í kjölfar könnunar sem leiddi í ljós að mikill meiri- hluti þeirra sem afstöðu tóku var hlynntur þessu markmiði. Hjá Islandsbanka, Glitni og VÍB vinna um eitt þúsund manns og gera má ráð fyrir að þriðji hver þeirra reyki. Tryggvi Pálsson, bankastjóri Islandsbanka, segir að í raun snúist málið um það að fram- fylgja lögum um tóbaksvarnir betur en nú er og jafnframt hvetja samstarfsfólk til að sýna tillitssemi með því að minnka þá heilsuspillandi mengun og þann T ■ JSJF ‘ii' ■ 11 | 1 ■ 1 Jl i'l I | i i ||i ■ ¥ \ 4fi > sóðaskap sem hlýst af reyking- um. Nú þegar eru tvö útibú bankans reyklaus, á Akranesi og Blönduósi. Tryggvi segir að ekki sé ætlunin að ganga fram með boðum og bönnum gegn reyk- ingafólki, lögð verði mikil áhersla á að vinna að átakinu meö jákvæðum hætti með það fyrir augum að vernda rétt þeirra sem ekki reykja. Átakiö beinist fyrst og fremst gegn tóbaksreyk, ekki reykingafólki. í áðurnefndri könnun var meðal annars spurt á hvern hátt reykingar samstarfsfólks hefðu áhrif. Flestir, eða 33%, sögðu að ólykt af hári og fötum færi mest í taugarnar á þeim. Þá nefndu 21% augnertingu, 16% sögðust fá hósta af tóbaksreyk og 9% fá höfuðverk af því að vera innan um fólk sem reykti. Á þessu ári mun átakið „Reyk- laus íslandsbanki árið 2000" ná hámarki á reyklausum degi inn- an bankans í október. Þá er ætl- unin að bjóða þeim starfsmönn- um sem reykja og jafnvel mök- um þeirra á námskeið í septem- ber. Reyklausum vinnustöðum verða veitt sérstök viðurkenn- ingarskjöl og merki, sem hannað var sérstaklega fyrir bankann, verður komið fyrir í afgreiðslu- sölum. B.V. HEILBRIGÐISMÁL 1/1992 5

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.