Heilbrigðismál - 01.03.1992, Qupperneq 6

Heilbrigðismál - 01.03.1992, Qupperneq 6
HEILBRICÐISMÁL / Ljósmyndarinn Matur og máltíðir Grein eftir Laufeyju Steingrímsdóttur Reglubundin máltíöaskipan með daglegum morgunverði, hádegis- verði og kvöldverði er oft talin undirstaða hollra fæðuvenja. í könnun á mataræði íslendinga (sjá Heilbrigðismál 2/1991) var meðal annars lögð nokkur áhersla á upp- lýsingaöflun varðandi þennan þátt. Öll neysla var skráð í spurn- ingahefti sem var skipt í kafla eftir máltíðum og millibitum. Spurt var um morgunverð, millibita fyrir há- degi, hádegisverð, millibita eftir hádegi, síðdegishressingu, milli- bita fyrir kvöldverð, kvöldverð og kvöldhressingu. Hér verður gerð grein fyrir helstu niðurstöðum. Morgunverður Meira en helmingur fólks í öllum aldurshópum karla og kvenna borðar morgunverð daglega. Ungt fólk, og þá sérstaklega ungar stúlk- ur á aldrinum 15-19 ára, sleppir morgunverði oftar en aðrir. Tíunda hver stúlka borðar morgunverð að- eins einu sinni í viku eða sjaldnar og tíundi hver piltur borðar morg- unverð þrisvar í viku eða sjaldnar. Bæði karlar og konur á aldrinum 20-49 ára borða morgunverð að jafnaði sex daga vikunnar og ald- urshópurinn 50-69 ára borðar nán- ast undantekningarlaust einhvern morgunverð daglega. Kaffi og heilhveitibrauð með osti hafa greinilega vinninginn hvað varðar vinsældir í morgunsárið. Súrmjólk fylgir fast á eftir og einn- ig margs konar morgunverðarkorn með mjólk. Fjórði hver maður tek- ur lýsi og tólf af hundraði borða hafragraut. Níu af hundraði nefna sætabrauð sem morgunverð en at- hygli vekur hversu sjaldséð egg eru á morgunverðarborði Islend- inga, aðeins einn af hundraði nefn- ir steikt egg í morgunverð og enn færri nefna soðin egg. Þótt morgunverður sé oft talinn mikilvægasta máltíð dagsins virðist hann vera fremur lítilfjörleg máltíð hér á landi með tilliti til orku og næringarefna. Morgunverður veit- ir að jafnaði aðeins 14 af hundraði heildarorku dagsins en til saman- burðar veita síðdegishressing og millibitar samanlagt 29 af hundraði eða tvisvar sinnum meira en morg- unverður. Það skýtur óneitanlega skökku við að þótt morgunverðurinn sé yf- irleitt lítil og létt máltfð er hann hlutfallslega mjög fituríkur. Fita veitir hvorki meira né minna en 46 af hundraði orku í morgunverði karla og 43 af hundraði hjá konum. Engin máltíð önnur er hlutfallslega jafn fiturík. Ástæða þessa er fyrst og fremst sú að algengustu fæðu- tegundir morgunverðar, smurt brauð með osti og súrmjólk, eru mjög feitur matur ef brauðið er mikið smurt og ef súrmjólkin er borðuð ein og sér. Öðru máli gegn- ir ef brauðið er lítið smurt eða kornmatur hafður með súrmjólk eða mjólk, hvort heldur er hafra- grautur eða morgunverðarkorn úr pakka. Sá munur sem er á morg- unverði karla og kvenna með tilliti til fituhlutfalls skýrist fyrst og fremst af því að konur smyrja brauð minna og nota léttmjólk í ríkari mæli en karlar. Heitar máltíðir Það kemur sjálfsagt einhverjum á óvart að heitar máltíðir eru til- tölulega fyrirferðamiklar í matar- æði íslendinga bæði hvað varðar næringargildi og fjölda máltíða. Flestir borða eina heita máltíð á dag og þó nokkrir borða heitan mat tvisvar á dag. Það vekur at- hygli að karlar borða fleiri heitar máltíðir en konur í öllum aldurs- hópum. Fjöldi heitra máltíða er mismun- andi eftir atvinnu. Sjómenn borða fleiri heitar máltíðir í mánuði en nokkur önnur starfsstétt, en bænd- ur, ófaglærðir verkamenn og eftir- launamenn fylgja fast á eftir. Kon- ur í bændastétt borða heitan mat jafnoft körlum í bændastétt en konur í öllum öðrum starfsstétt- um borða sjaldnar heitan mat en karlar. Heitu máltíðirnar eru tvímæla- laust næringarríkustu og veiga- mestu máltíðir dagsins. Þær veita rúman þriðjung heildarorku dags- ins, hvorki meira né minna en helming próteina (hvítu) og járns og tæpan helming trefjaefna fæð- unnar dag hvern. Langmestur hluti grænmetisneyslu er með heit- um máltíðum og þegar þar við bætist að fituhlutfall heitu máltíð- anna er gjarnan minna en brauð- máltíða er greinilegt að heitar mál- tíðir skipta miklu máli um hollustu fæðisins. Fjöldi fólks borðar aðalmáltíð dagsins í mötuneyti vinnustaða eða stofnana. Könnunin tók ekki til vistmanna stofnana, en samt sem áður sagðist um fimmti hver karl í þéttbýli á aldrinum frá tví- 6 HEILBRIGÐISMAL 1/1992

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.