Heilbrigðismál - 01.03.1992, Side 9
Erlent
Orð og athafnir
Meirihluti lækna sem
starfa við Harvard há-
skóla í Bandaríkjunum
reykir-ekki (97%), notar
alltaf bílbelti (86%), tekur
smjörlíki og hliðstæðar
afurðir fram yfir smjör
(78%), borðar fisk einu
sinni í viku eða oftar
(65%), notar tannþráð
a.m.k. þrisvar í viku
(60%), drekkur tvo kaffi-
bolla eða minna á dag
(58%) og stundar líkams-
rækt minnst þrisvar í
viku (53%). Þetta kemur
fram í könnun sem gerð
var á síðasta ári. Niður-
stöðurnar eru taldar
benda til að þeir sem
búa yfir mestri vitneskju
um heilbrigða lífshætti
tileinki sér þá þekkingu.
Harvard Health Letter.
Slys af sláttuvélum
Á hverju ári verða tug-
ir þúsunda Bandaríkja-
manna fyrir slysum af
völdum garðsláttuvéla.
Sum slysanna eru vegna
steina og því um líks
sem vélin þeytir frá sér,
en alvarlegri slys geta átt
sér stað ef fólk rekst í
vélina, stundum með
þeim afleiðingum að tær
eða fingur skerast af. í
átta af hverjum tíu tilvik-
um eiga karlar í hlut.
Sláttuvélablöð snúast allt
að 4000 hringi á mínútu
og því er full ástæða til
að sýna gát þegar gras-
flötin er slegin. Nauð-
synlegt er að vera í
sterkum lokuðum skóm
við sláttinn og halda
börnum í hæfilegri fjar-
lægð frá vélinni. Þá er
varasamt að eiga við
sláttuvélablaðið með
fingrunum, ef það festist.
Mayo Clinic Health Letter.
Skyldunotkim
reiðhjólahjálma
Notkun öryggishjálma
við hjólreiðar dregur úr
alvarlegum áverkum við
slys um 50-80%. Athug-
anir í Bandaríkjunum
sýna að auka má hjálma-
notkun nokkuð með
fræðslu í skólum. Hins
vegar sýnir reynslan af
bílbeltum og bifhjóla-
hjálmum að verulegur
árangur næst ekki nema
með skyldunotkun og er
það einnig talið eiga við
reiðhjólahjálma. Nú hafa
Ástralir riðið á vaðið og
lögbundið notkun reið-
hjólahjálma upp að 12
ára aldri. Miklar vonir
eru bundnar við þessa
ákvörðun sem tók gildi á
síðasta ári.
Medical Journal of Australia.
Pediatrics.
Áður en hætt er
Ymis ráð hafa verið
nefnd þegar reykinga-
menn búa sig undir að
hætta. Hér eru nokkur
þeirra:
• Kauptu aðra tegund
en áður.
• Geymdu sígaretturn-
ar, eldspýturnar og
öskubakkann ekki á
sama stað.
• Burstaðu alltaf tenn-
urnar áður en þú færð
þér sígarettu.
• Haltu á sígarettunni í
þeirri hendi sem þú ert
ekki vanur.
• Reyktu sígarettuna að-
eins til hálfs.
• Tæmdu öskubakkann
sjaldan, en þegar það er
gert má setja innihaldið í
glerkrukku og hella vatni
í hana. Rétt er að líta oft
á þessa ógeðslegu upp-
lausn.
Todays Healtli Report.
Lífshættulegar auglýsingar
Wayne McLaren varð frægur sem
Marlboro-maðurinn. En sígaretturn-
ar, sem gerðu hann ríkan, urðu
einnig ógæfa hans.
í Marlboro-auglýsingum reið
hann á kastaníubrúnum hesti sín-
um, í gallabuxum með kúrekahatt
og sígarettu í munninum. Hann
gerði samning við framleiðanda
þessara sígaretta á sjöunda áratugn-
um og átti þátt í því að tengja sígar-
ettur kúrekaímyndinni, líkt og
skammbyssur. Talið er að með
þessari hetjuímynd hafi tekist að fá
milljónir unglinga til þess að byrja
að reykja.
En nú getur Wayne McLaren ekki
lengur leikið hetju á hestbaki. Árið
1990 fékk hann að vita að hann væri
með lungnakrabbamein. Þá hafði
hann reykt einn og hálfan pakka af
sígarettum á dag í 25 ár. Hann
reykti aðeins Marlboro, því í samn-
ingnum stóð að hann mætti ekki
reykja neitt annað. En nú hafa
reykingarnar tekið sinn toll. Wayne
lést í júlí 1992, aðeins fimmtugur.
Meðan tíminn var að renna út
barðist Wayne gegn reykingum og
vildi helst ná til unglinga. Hann
sagði að unglingarnir yrðu að fá að
vita hvaða afleiðingar reykingar
gætu haft.
kadda livet.
Wayne McLaren reykti í 25 ár
en síðustu ár ævi sinnar barðist
hann gegn reykingum.
HEILBRIGDISMÁL 1/1992 9