Heilbrigðismál - 01.03.1992, Page 17

Heilbrigðismál - 01.03.1992, Page 17
Hugsum okkur að slíkt væri gert um víða veröld: Þá skytu rótum 80 milljarðar trjáa á ári hverju. Það tæki ekki hálfkæfða jörðina okkar langan tíma að anda eðlilega á nýj- an leik, ef þannig væri brugðist við um heim allan. Það er stefnumark okkar að breyta uppblásnum heimsskautajarðvegi aftur í græna jörð. Irski rithöfundurinn Edmund Burke komst snilldarlega að orði þegar hann sagði: „Enginn gerir al- varlegri mistök en sá sem ekkert aðhefst, af því að hann telur sig aðeins fá litlu áorkað." Við skulum þó varast sjálfsánægju því við hefj- umst ekki handa til að uppskera lof heldur til að koma í veg fyrir tortímingu barna okkar og barna- barna, sem af okkur taka við þess- ari jörð. Alþjóðaráðstefna um málefni barna, sem haldin var í aðalstöðv- um Sameinuðu þjóðanna í New York 1990, samþykkti yfirlýsingu um Iífsrétt, verndun og þroska barna. Börn heimsins hafa sent okkur hér í Ríó orðsendingu sem flutt er á táknrænan h'átt með vík- ingaskipinu Gaia, og minnir okkur á að halda gefin loforð. Þessi til- mæli hafa verið gefin út á bók sem verður aflient okkur öllum. Ég vitna þar aðeins til ummæla ungl- ingsstúlku sem svarar þegar hún er innt eftir hug sínum til framtíð- arinnar: Auðvitað hef ég áhuga á framtíðinni. Hún er það sem ég á eftir ólifað." Fyrir þúsund árum trúðu forfeð- ur okkar Norðurlandabúa því að ill öfl myndu tortíma veröldinni. A Islandi kunnum við ennþá niður- lag Völuspár, sem er meðal perla í bókmenntaarfi okkar og geymir forna heimssýn okkar: Sér hún upp koma öðru sinni jörð úr ægi iðjagræna. Falla fossar, flýgur örn yfir, sá er á fjalli fiska veiðir. Aldrei fyrr hefur þessi lýsandi fortíðarsýn fært okkur jafnmikla hugsjónaglóð til framtíðar. • • Ondun og umhverfi „Umhverfi" er í þröngum skilningi sú grennd sem við lif- um í og hrærumst, í víðum skilningi jarðkringlan eins og hún leggur sig ásamt lofthjúpn- um umhverfis hana. Umhverfi er því landið undir fótum okkar og allt sem á því er, hafið og andrúmsloftið. Svo viröist sem athygli manna beinist í bili hvað minnst að síðast nefnda hlutanum, sem út af fyrir sig er umhugsunarvert þegar á það er litið að í andrúmsloftinu er fólg- in forsendan fyrir tilvist alls „sem andann dregur". Andrúmsloftinu má með góðu móti skipta í tvo hluta hvað varðar öndunarverur á borð við manninn: Hið eigin- lega öndunarloft næst okkur og lofthafið stóra fjær, háloftin. Þá sérstöðu hefur lofthluti umhverfisins að hann tekur beinan þátt í líkamsstarfsem- inni, hvort sem lífveran andar gegnum vit sín eða með öðrum hætti. Ekki einasta tekur innand- að loft þátt í efnaskiptum lík- amans heldur bindur hluti þess sig við hverja frumu um tíma uns því er skilað í breyttu formi aftur út í öndunarrúmið. Fyrst þannig er í pottinn búið er skilj- anlegt að það skiptir lífverur öllu máli að samsetning andrúms- loftsins sé þeim ekki skaðleg. Enda þótt lofthafið í kringum okkur, óravidd geimsins, sé ómælanleg stærð, er nú svo komið, að sögn andrúmslofts- sérfræðinga, að mengun þess hefur náð hættulegu stigi. Lýs- ingarnar á mengun loftsins eru hinar ótrúlegustu, sumar svo hrikalegar að hægt væri að láta sér detta í hug að um tauga- veiklunaróra væri að ræða. Svo er þó ekki. Fremur mætti segja að verið sé að reiða fram fyrir okkur staðreyndir sem að magni og mikilvægi eru þannig að okkur brestur hugarflug tii að skilja þær til fulls . . . Vísast munu núlifandi kyn- slóðir sleppa að mestu við al- varlegar afleiðingar mengunar andrúmsloftsins en hafa ber í huga að börn eru varnarlausari gagnvart mengun en fullorðnir, m.a. er öndunarmynstur þeirra annað en fullorðinna. Þannig anda börn í hvfld að sér helrn- ingi meira af lofti á hvert kíló líkamsþunga en fullorðnir, þar með talin mengunarefni ef því er að skipta, og „afeitrunarkerfi" nýrna þeirra, lifrar og efnahvata hefur ekki náð sama þroska og fullorðinna til að fást við meng- unarefni og „afeitra" þau. Ahættan er því mest hjá börnum framtíðarinnar og er því ekki úr vegi að minnast af- ríska spakmælisins: Við feng- um ekki heiminn í arf eftir for- eldra okkar, heldur að láni frá börnum okkar. Þettn er liluti afgrein eftir Hauk Þóröarson yfirlækni, en hún birtist í SÍBS-fréttum, 1/1992. HEILBRIGDISMÁL 1/1992 17

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.