Heilbrigðismál - 01.03.1992, Síða 27

Heilbrigðismál - 01.03.1992, Síða 27
HEILBRIGÐISMÁL / Amar B. Vignisson Heilsuvemd kynlífs Grein eftir Jón Hilmar Alfreðsson Einn er sá þáttur heilsuverndar sem enn er vanræktur um efni fram. Hann tengist kynlífinu, sem ekki þykir liæfa að hafa mjög í orð- ræðu. Þó er afar brýnt og til mikils að vinna ef gerlegt reyndist að vernda ungmenni frá varanlegu heilsutjóni sem hlýst af kynsjúk- dómum. Mögulegt ætti að vera að ná árangri á þessu sviði nú þegar áhugi er mikill á hvers konar rækt líkama og sálar. Líðandi öld einkennist meöal annars af stórum sigrum heilsu- verndar. Mæðraskoðun kom fyrst og mæðradauði heyrir nú sögunni til. Þá má telja barnaeftirlit og ónæmisaðgerðir hvers konar með ómældum árangri og síðan berkla- varnir sem útrýmdu berklum að mestu. Nær okkur í tíðinni hófst krabbameinsleit og hjarta- og æða- vernd með áherslu á holla hreyf- ingu og mataræði. Loks er tann- verndin ferskt dæmi sem virðist skila árangri. Á sama tíma og svo mikið hefur áunnist hefur gengið yfir heiminn sú versta holskefla kynsjúkdóma sem sögur fara af. Afleiöingarnar eru miklu alvarlegri og víðtækari en almennt er ljóst og manni verð- ur á að spyrja hvort það ástand sé varanlegt og óbreytanlegt að fjöldi ungmenna sýkist við upphaf kyn- lífs, oft án vitundar um sýkinguna og hættuna sem af henni stafar? Er það alveg víst að ómögulegt sé að breyta viðhorfi ungs fólks til kyn- hegðunar? Nei, það er ekki gefið. Sagan sýnir að kynhegðun hefur verið breytileg og hvað sem öðru líður er rík ástæða til að hreyfa þessu máli og þeim mun ríkari sem ástandið er alvarlegra. Eitt af því sem einkennir óheilla- þróun síðustu tveggja áratuga er útbreiðsla áður ókunnra eða lítt þekktra sýkinga. Gamlar valin- kunnar sýkingar hafa ýmist horfið að kalla af sviðinu eins og sdrasótt eða staðið nokkuð í stað eins og leknndi. Hinar nýrri sýkingar sem komið hafa fram hafa fæstar hlotið íslensk heiti ennþá. Þar má nefna sýkingar af völdum trikðmónas sem er einfrumungur og talinn hafa borist norður um Evrópu og var orðinn algengur á Norðurlöndun- um um 1960. Herpesveirnn hefur náð að breiðast út hér á landi á síð- ustu tíu til fimmtán árum. Hún er talin hættuleg börnum sýkist þau í fæðingu. Svonefnd vörtuveira (Human Papiloma Virus) er einnig orðin býsna algeng. Hún veldur vörtum á kynfærum og víðar (con- dyloma) og er talin geta átt þátt i myndun forstiga leghálskrabba- meins. Klamydía er talin í hópi baktería. Hana er erfitt að rækta og því ekki auðvelt að grcina, en nú er þó komið á daginn að hún er al- gengasti sjúkdómsvaldur í kynfær- um, einkum meðal ungmenna. Hún veldur oft litlum óþægindum eöa einkennum og þannig vinnur hún tjón sitt óáreitt á sérhæfðum og viðkvæmum líffærum æxlunar. Vart má annað en minnast á HIV- veiruna, sem veldur hinni ban- vænu eyðni, en hún berst einkum með kynmökum, bæði eðlilegum og afbrigðilegum. Þessi upptalning á sýklum og sjúkdómum gæti vcrið mun lengri, bæði kynsjúkdómum í þrengri merkingu en einnig öðrum sem herja víðar en á kynfærin og smit- ast geta á annan hátt en með kyn- mökum. Alls eru taldir 32 sýklar sem þekktir eru að því að sýkja æxlunarfærin, en hér verður staðar numið. Sagt hefur verið að eftirstríðs- kynslóðin hafi á sokkabandsárum sínum, upp úr 1960, tekið fegins hendi bæði pillunni og lykkjunni sem tækjum er gerðu mögulega hugsjón hippa um frjálst og helst óheft kynlíf án allrar áhættu. Áður voru sýklalyf komin, virk bæði gegn lekanda og sárasótt. Þá upphófst um þær mundir heimshornaflakk mikið, einnig meðal ungmenna, og upp úr þessu fór að krauma heldur betur í pottum kynorkunnar og HEILBRIGÐISMÁL 1/1992 27

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.