Heilbrigðismál - 01.03.1992, Síða 30
KKABBANtEINSFÉLAGlÐ / Ljósmynd.irinn
Fréttir frá
Krabbameinsfélaginu
Formannaskipti á aðalfundi
Jón Þorgeir Hallgrímsson yfirlæknir var kjörinn for-
maður Krabbameinsfélags Islands til næstu tveggja
ára á aðalfundi félagsins sem haldinn var í maí. Hann
tekur við formennsku af Almari Grímssyni apótekara,
sem hefur verið formaður félagsins síðustu fjögur ár
en gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Jón Þorgeir er
yfirlæknir á kvennadeild Landspítalans og sviðsstjóri
á kvenlækningasviði Ríkisspítalanna. Hann hefur ver-
ið í stjórn Krabbameinsfélags Islands síðan 1988. Þá
hefur hann verið í stjórn Krabbameinsfélags Reykja-
víkur frá 1979 og formaður þess félags undanfarin
fjögur ár.
Aðalfundinn sátu fulltrúar frá tuttugu aðildarfélög-
um Krabbameinsfélags Islands. Verndari félagsins,
Vigdís Finnbogadóttir forseti lslands, var við upphaf
fundarins. Þar var meðal annars minnst þriggja lát-
inna forvígismanna, Hjartar Hjartarsonar, lngveldar
Valdimarsdóttur og Kjartans Aðalsteinssonar.
Fram kom á fundinum að starf félagsins á síðasta ári
gekk mjög vel og staða þess er sterk. Hagnaður varð
af rekstrinum í fyrra en tap hafði verið árið áður. Fé-
lagiö annast leitarstarf, rannsóknir, skráningu krabba-
meina, útgáfu o. fl. Auk þess veitir það krabbameins-
sjúklingum þjónustu, meðal annars svonefnda heima-
Jón Þ. Hallgrímsson, nýkjörinn formadur Krabba-
meinsfélags Islands, og Almar Grímsson fráfarandi
formaöur.
Stjórn Krabbameinsfélags íslands
1992-1993
Jón Þ. Hallgrímsson yfirlæknir, formaður.
Aðalbjörg Magnúsdóttir húsmóðir.
Björgvin Lúthersson stöðvarstjóri.
Elfa-Björk Gunnarsdóttir framvæmdastjóri.
Guðrún Kristinsdóttir læknaritari.
Halla Aðalsteinsdóttir kennari.
Helgi Sigurðsson læknir.
Ingi R. Helgason stjórnarformaöur VÍS.
Jón Agnar Eggertsson form. Verkal. Borgarness.
Jónas Franklín læknir.
Ólafur Haraldsson aðstoðarsparisjóðsstjóri.
Ragnar Pálsson skrifstofustjóri.
Sigríður Lister hjúkrunarforstjóri.
Sigurður Björnsson læknir.
Vigdís Magnúsdóttir hjúkrunarforstjóri.
hlynningu. Almenn ánægja var með þá viðurkenn-
ingu sem starf Krabbameinsfélagsins hlaut í vor þegar
framlengdur var um sex ár samningur milli félagsins
og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins en
hann felur í sér að félagið skipuleggur og annast leit
að krabbameini f leghálsi og brjóstum. Samþykkt var
ályktun á fundinum þar sem lögð var áhersla á mikil-
vægi tóbaksvarna og Alþingi hvatt til að efla löggjöf
um þessi mál.
í stjórn Krabbameinsfélags íslands eru fimmtán
manns, þar af fimrn í framkvæmdastjórn. Þeir eru,
auk formanns, Sigurður Björnsson læknir, Ingi R.
Helgason stjórnarformaður VÍS, Sigríður Lister hjúkr-
unarforstjóri og Halla Aðalsteinsdóttir kennari. Starfs-
menn Krabbameinsfélagsins eru yfir níutíu í Reykja-
vík (í um sextíu stöðugildiim). Auk þess hafa krabba-
meinsfélögin á Austurlandi og Akureyri ráðið
starfsmenn, og fleiri félög eru að kanna möguleika á
ráðningu í hlutastarf.
Á aðalfundinum voru fráfarandi formanni, Almari
Grímssyni, þökkuð farsæl störf hans að málefnum
Krabbameinsfélags Islands. Stjórn félagsins samþykkti
aö kjósa Almar í heiðursráð Krabbameinsfélagsins en
þaö er æðsta viðurkenning sem félagið veitir fyrir
framlag til baráttunnar gegn krabbameini. Jafnframt
var honum afhent gullmerki félagsins.
Samningur um leit ad krabbameini
Undirritaður hefur verið samningur sem tryggir
áframhaldandi leit að krabbameini í leghálsi og brjóst-
um íslenskra kvenna með það að markmiði aö fækka
dauðsföllum af völdum þessara sjúkdóma. Fyrir fimm
árurn fól heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
Krabbameinsfélagi íslands að annast skipulag og
framkvæmd leitarinnar. Mjög góð reynsla hefur verið
af þessu samstarfi og voru aðilar ásáttir um að fram-
lengja samninginn til ársloka 1998 með sömu markmið
30 heilbrigðismál 1/1992