Heilbrigðismál - 01.09.1996, Side 7
Hægt er að losa um
stíflur í nefgöngum með
því að fá sér kjúklinga-
súpu, samkvæmt rann-
sóknum sem gerðar voru
við háskóla í Nebraska
og sagt er frá í tíma-
ritinu Men's Health.
Þetta gæti komið að
gagni þegar kvef er að
ganga.
C-vítamín
fyrir beinin
Kalkrík fæða er talin
nauðsynleg til að styrkja
beinin og draga úr hættu
á beinþynningu. Nú hef-
ur komið í ljós að enn
má bæta um betur með
því að tryggja nægilegt
C-vítamín, til dæmis úr
appelsínum, spergilkáli
eða kíví-ávöxtum.
Um 100 milligrömm af
C-vítamíni á dag til við-
bótar við 500 milligrömm
af kalki bæta ástandið
fyrir þá sem eru í
áhættuhópi, en það eru
einkum konur.
Prevention, nóvember 1996.
Nóg af plöntum
Stofublóm geta verið
betri en sérstök tæki til
að hreinsa óæskileg efni
úr andrúmslofti innan-
húss. Sumar plöntur
vinna gegn formaldehýði
og aðrar benzeni, svo að
dæmi séu nefnd. Mælt er
með því að ein góð
planta sé á hverja tíu til
fimmtán fermetra.
Vibrmil Ufe, mars-april 1996.
Hjörtun
slá í takt
Þeir sem missa maka,
nákominn vin eða ætt-
ingja eru í aukinni hættu
á að fá hjartaáfall í heilan
mánuð á eftir, samkvæmt
bandarískri rannsókn.
Fyrsta daginn er áhættan
fjórtánföld, annan daginn
fimmföld en síðan dregur
smám saman úr henni.
Þekkt er að skyndilega
aukið álag eykur hættu á
hjartasjúkdómum en ekki
er vitað nákvæmlega
hvernig það gerist.
Hnrvard Health Letter,
júní 1996.
Til fyrirmyndar
Sænskir læknar hafa
dregið mikið úr reyking-
um sínum. Fyrir tæpum
þrem áratugum reyktu
46% lækna daglega en
nú aðeins 6% og þeir
reykja að meðaltali að-
eins fimm sígarettur á
dag. Flestir þeirra sem
Appelsínusafi er ríkur
af C-vítamíni sem, ásamt
kalki, dregur úr hættu á
beinþynningu.
enn reykja ætla að vera
hættir innan fimm ára.
Þetta er mun betra
ástand en í þjóðfélaginu í
heild og er talið bera vott
um að læknar geri sér
grein fyrir þeirri ábyrgð
sem á þeim hvílir sem
fyrirmyndum, auk þess
sem þeir vita manna best
um skaðsemi reykinga.
Lcikartidningen, nóvember 1996.
í megrun
Feitu fólki er níu sinn-
um hættara en öðrum að
fá sýkingu í kjölfar
skurðaðgerða, að mati
lækna við ríkissjúkrahús-
ið í Ohio í Bandaríkjun-
um. Eina ráðið er að
fara í megrun áður en
lagst er undir hnífinn.
Men's Health, desember 1996.
Beta-karótín
bætir minnið
Með því að borða fæðu
sem er rík af beta-karó-
tíni er hægt að verjast
minnistapi, segja hol-
lenskir vísindamenn. Þeir
sem fengu minna en 0,9
milligrömm á dag af
beta-karótíni voru helm-
ingi líklegri til að tapa
minni en þeir sem fengu
w
Gulrætur hafa margt til
síns ágætis. Þær eru
einkum ríkar af beta-
karótíni sem virðist geta
veitt vörn gegn krabba-
meini og jafnvel bætt
minnið.
2,1 milligramm eða meira
á dag, samkvæmt niður-
stöðum rannsóknar sem
náði til 5100 manna á
aldrinum frá 55 ára til 95
ára.
Þess má geta að 2,1
milligrömm af beta-
karótíni fást úr hálfri til
einni gulrót.
Medical Tribunc Neivs Service,
ágúst 1996.
Reyklaus eyja
íbúar á eyjunni Lundy,
við vesturströnd Eng-
lands, ætla að laða fleiri
ferðamenn til sín með
því að gera tóbak útlægt
frá eyjunni. Engar tób-
aksvörur verða seldar
þar og þeir sem koma
þangað verða að stað-
festa að þeir hafi ekki
með sér tóbak.
Ar hvert koma um
sautján þúsund ferða-
menn til þessarar litlu
eyjar og vona eyjaskeggj-
ar að þeir verði enn fleiri
vegna reykleysisins. Gert
er ráð fyrir ferðamönnum
sem reykja ekki og einnig
reykingamönnum sem
vilja nota tækifærið til að
venja sig af þessum ósið
og anda að sér hreinu og
ómenguðu sjávarlofti.
Shape-up, desembcr 1996.
HEILBRIGÐISMAL 3/1996 7