Heilbrigðismál - 01.09.1996, Qupperneq 11

Heilbrigðismál - 01.09.1996, Qupperneq 11
Morgunblaðið (Einar Falur Ingólfsson) Guðrún Bjömsdóttir er elst íslendinga Sló met Halldóru Bjamadóttur í byrjun desember Sunnudaginn 20. október 1996 var haldið upp á það á dvalarheimilinu Betel í Gimli í Manitóbafylki í Kan- ada að Guðrún Björg Björnsdóttir Arnason átti 108 ára af- mæli. Guðrún fæddist í Vopnafirði og var á fimmta ári þegar fjölskylda hennar flutti til Vesturheims, með skipinu Thyra. Guðrún giftist Vilhjálmi Árnasyni árið 1915. Þau bjuggu við Winnipegvatn og eignuðust níu börn. Hún hefur tvisvar komið í heimsókn til Islands, 1957 og 1965, þá 76 ára. Guðrún var djákni í kirkju lút- herska safnaðarins í Gimli í áratugi. „Eg heiti íslensku nafni, er alíslensk og hef alltaf talað íslensku," sagði Guðrún í viðtali við blaðamann Morgunblaðsins sem heimsótti hana í sumar. í byrjun desember sló Guðrún met Halldóru Bjarna- dóttur á Blönduósi en hún var 108 ára og 44 daga þegar hún lést í nóvember 1981. Segja má að Guðrún eigi Is- lendingamet í langlífi en Halldóra eigi Islandsmetið. Hvað sem öðru líður hefur Guðrún náð hæstum aldri Vestur-íslendinga. Næst henni kemur sennilega Jóhanna Stefánsdóttir Sölvason úr Skagafirði, fædd að Eyhildarholti 4. desember 1873. Hún var orðin 107 ára þegar hún lést, í júlí 1981. Maður Jóhönnu, Sigurður Sölvason, varð 101 árs. Þau bjuggu í Wynyard í Saska- tchewan í Kanada og varð þeim fjögurra barna auðið. Þegar Jóhanna og Sigurður héldu upp á 70 ára brúð- Ljósmyndari Morgunblaðisns, sem tók þessa mynd af Guðrúnu Björgu Björnsdóttur Arnason í sumar, sagði að hún hefði þá verið ágætlega hress og borið aldurinn með reisn. Húir var enn hin hressasta í des- ember 1996, samkvæmt upplýsingum frá Gimli. kaupsafmæli sitt árið 1965 þótti það miklum tíðindum sæta og þau fengu meðal annars heillaóskaskeyti frá Elísabetu Englandsdrottningu og heiðursskjal frá fylk- isstjórninni. Auðbjörg Guðnadóttir náði einnig mjög háum aldri. Hún var fædd í Árnessýslu 23. júní 1871, fór til Reykja- víkur og eignaðist þar son (Pálma Ólafsson, f. 1898, d. 1989). Auðbjörg flutti vestur um haf árið 1911, kom aldrei heim en skrifaðist á við son sinn og fleiri. Hún var enn á lífi í Bandaríkjunum árið 1978, þá orðin 107 ára, en ekki hefur tekist að fá upplýsingar um dánar- dag hennar. Meðal bræðra Auðbjargar voru Kristinn Guðnason verksmiðjueigandi í Bandaríkjunum og Jón Guðnason fisksali í Reykjavík. Guðrún Einarsdóttir Guðmundsson, sem var fædd í Breiðdal 18. mars 1877, varð rúmlega 105 ára. Hún flutt- ist með foreldrum sínum til Vesturheims og giftist Finnboga Guðmundssyni. Þau bjuggu fyrst í Norður- Dakota en síðan 1917 í Mozart í Saskatchewan og eign- uðust sex börn. Eins og sést af meðfylgjandi töflu raða vestur-ís- lenskar konur sér í þrjú af fjórum efstu sætunum á skrá um þá íslendinga sem lengst hafa lifað. Af þeim sem búa á Islandi og voru á lífi í desember 1996 er Kristín Hallgrímsdóttir í Eyjafirði elst, en hún varð 104 ára í október. Þórður Kristleifsson í Reykjavík er elstur karla, hann varð 103 ára í mars. -jr. Helstu heimildir: Vestur-íslenskar æviskrár. Skagfirskar æviskrár. Lög- berg-Heimskringla 23. maí 1974. Morgunblaðið 14. október 1978 og 1. september 1996. Heilbrigðismál 1-2/1994, bls. 6. Páll Lýðsson. Jón Örn Jónsson ræðismaður í Saskatchewan. Neil Bardal ræðismaður í Mani- toba. Gunnhildur Lorensen ræðismaður í Kaliforníu. íslendingar sem lengst hafa lifað Guðrún Björnsdóttir Halldóra Bjarnadóttir Kanada Blönduósi 108 ár 108 ár og 44 daga Jóhanna Stefánsdóttir Auðbjörg Guðnadóttir Kanada Bandaríkjunum 107 ár og 234 daga 107 ár Guðrún Þórðardóttir Aldís Einarsdóttir Helga Brynjólfsdóttir Jenný Guðmundsdóttir María Andrésdóttir Húsavík Eyjafirði Hafnarfirði Garðabæ Stykkishólmi 106 ár og 320 daga 106 ár og 300 daga 106 ár og 184 daga 106 ár og 81 dag 106 ár og 43 daga Sigurður Þorvaldsson Guðriin Einarsdóttir Valgerður Friðriksdóttir Skagafirði Kanada Akureyri 105 ár og 333 daga 105 ár og 288 daga 105 ár og 186 daga HEILBRIGÐISMÁL 3/1996 11

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.