Heilbrigðismál - 01.09.1996, Síða 15

Heilbrigðismál - 01.09.1996, Síða 15
Bið verður á því að ný heilsu- gæslustöð verði tekin í notkun í Smárahvammi í Kópavogi. Fjár- veitingin fyrir árið 1997 nægir ekki til að ljúka framkvæmdum. Enn er verið að byggja: Framkvæmdir fyrir hundruð milljóna króna I I Á fjárlögum sem samþykkt voru á Alþingi í desember eru veittar samtals 903 milljónir króna til stofnkostnaðar og tækjakaupa á heilbrigðisstofnunum árið 1997, þar af eru á þriðja hundrað milljónir króna til framkvæmdasjóðs aldr- aðra. I heild er þetta heldur hærri fjárhæð en árið áður. Þessu til við- bótar greiða sveitarfélög hluta af byggingarkostnaði þannig að áætla má að að framkvæmdir og aðrar fjárfestingar nemi um eða yfir ein- um milljarði króna. Er þá ekki tal- inn með kostnaður við viðhald. Ríkisspítalar fá 60 milljónir króna til nýframkvæmda, sem meðal ann- ars fara til að ljúka gerð lagnagangs á Landspítala, en auk þess er 169 milljóna króna framlag tii tækja- kaupa. Þar er meðal annars um að ræða endurnýjun á æðarannsókn- astofu, greiðslu á láni vegna endur- nýjunar á línuhraðli og kaup á bún- aði vegna hjartaaðgerða á börnum. Sjúkrahús Reykjavíkur fær 85 milljónir króna til kaupa á tækjum og búnaði en ekki er sérstök fjár- veiting til nýframkvæmda. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri fær 10 milljónir króna til tækja- kaupa og 35 milljónir króna vegna nýbyggingar, en áætlað er að heild- arkostnaður við hana sé um hálfur milljarður króna. Til byggingar sjúkrahúsa, heilsu- gæslustöðva og læknisbústaða eru veittar 156 milljónir króna. Þar ber fyrst að telja svonefnda D-álmu við Sjúkrahús Suðurnesja. Suðurnesja- menn hafa lagt mikla áherslu á þessa framkvæmd, sem nú virðist fara að hylla undir með 26 milljón króna fjárveitingu. Byggingakostn- aður er áætlaður á fjórða hundrað milljónir króna. Rúmar 20 milljónir króna fara til nýbyggingar fyrir heilsugæslustöð í Fossvogi í Reykjavík, 15 milljónir til að ljúka við heilsugæslustöð að Laugarási í Biskupstungum og 14 milljónir til framkvæmda við sjúkrahús og heilsugæslustöð í Stykkishólmi. Stefnt er að því að ljúka á árinu 1997 innréttingu þriðju hæðar nýbyggingar við sjúkrahús og heilsugæslustöð á Blönduósi og er fjárveiting til þess 12 milljónir króna. Á Hvammstanga er að ljúka framkvæmdum við stækkun sjúkrahússins og er fjárveiting nú 3,5 milljónir króna. I Smárahvammi í Kópavogi er risið hús fyrir nýja heilsugæslustöð en tæplega 12 milljóna króna fjárveiting nægir ekki tii að ljúka framkvæmdunum. Á fjárlagalið sem nefnist „sjúkra- hús með fjölþætta starfsemi" er 80 milljóna króna fjárveiting til stofn- framkvæmda vegna endurskipu- lagningar. Til „heilsugæslustöða al- mennt" er veitt 31 milljón til tækja og búnaðar. Þá er í fjárlögunum veitt heimild til að kaupa húsnæði vegna upp- byggingar heilsugæslu á höfuð- borgarsvæðinu og til kaupa á við- bótarhúsnæði fyrir heilsugæslu- stöðina Sólvang í Hafnarfirði. Nú er verið að ljúka við nýja heilsugæslustöð að Laugarási í Biskupstungum. HEILBRIGÐISMÁL 3/1996 15

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.