Heilbrigðismál - 01.09.1996, Qupperneq 25

Heilbrigðismál - 01.09.1996, Qupperneq 25
Hvað má lesa úr umbúðamerkingum? Grein eftir Brynhildi Briem Utan á umbúðum matvæla er oft að finna fróðlegar upplýsingar sem neytendur geta kynnt sér til að fræðast um efnasamsetningu, inni- hald, geymsluþol og meðferð vör- unnar. Akveðnar reglur gilda um hvernig þessar merkingar eiga að vera. (1,2) Meðal upplýsinga sem gefnar eru á umbúðum matvæla eru innihaldslýsingar og oft er nær- ingargildi vörunnar líka gefið upp. Geymsluþol og geymsiuskilyrði skulu einnig koma fram. Lýsing á innihaldi veitir greinar- góðar upplýsingar um samsetningu vörunnar. Hráefni, aukefni og önn- ur efni skulu skráð og þeim raðað eftir minnkandi magni. Standi í innihaldslýsingu að í vörunni sé til dæmis vatn, ávaxtasafi, sykur og bragðefni þá vitum við að mest er af vatninu, síðan kemur ávaxtasaf- inn svo sykurinn og loks bragðefn- in. Ef ávaxtasafinn hefði verið tal- inn fyrstur, á undan vatninu, gæfi það til kynna að mest væri af hon- um. Þessar merkingar gefa ekki til kynna hve mikið er af hverju fyrir sig í vörunni heldur eingöngu inn- byrðis hlutföll. í innihaldslýsingum á alltaf að telja upp öll hráefni sem í vörunni eru. Þó eru undantekningar frá Helstu hugtök Merkingar á umbúðum matvæla geta verið á íslensku, ensku eða Norður- landamáli. Hér er þýðing á nokkrum algengum hugtökum: fslenska Enska Danska orka energy energi kolvetni carbohydrate kulhydrat sykur sugar sukker trefjar fibre kostfibre fita fat fedt mettuð fita saturated fat mætted fedt prótein protein protein natríum sodium natrium vítamín vitamins vitaminer steinefni minerals mineraler þessu. Ef samsett hráefni er minna en 25% af nettóþyngd vörunnar er heimilt að merkja það undir eigin heiti (til dæmis brauðrasp). Undan- tekningin gildir þó ekki þegar nauðsynlegt er fyrir neytandann að fá rétta hugmynd um samsetningu vörunnar. Þannig skal telja upp aukefni úr þessu samsetta hráefni ef þau gegna tæknilegu hlutverki í lokaafurðinni. Eftirtalin innihalds- efni og afurðir úr þeim, sem geta valdið ofnæmi eða óþoli, skal alltaf merkja ef þau eru í vörunni: Mjólk, fiskur, egg, sojabaunir, skeldýr, jarðhnetur, möndlur, hnetur, hafrar, bygg, rúgur og hveiti. Ef einhver fullyrðing um næring- argildi matvöru kemur fram í merkingu, kynningu eða auglýs- ingu er skylt að gefa einnig upp næringargildi vörunnar. Sem dæmi um slíka fullyrðingu má nefna þegar vörur eru kallaðar létt- ar eða sykurlausar. f öðrum tilfell- um getur framleiðandinn sjálfur valið hvort næringargildi vörunnar komi fram á umbúðunum. Margir framleiðendur velja að setja þessar upplýsingar á allar sínar vörur. Þetta eru upplýsingar um hve mikla orku varan gefur, hvað hún inniheldur mikið af orkuefnum og hve stór hluti af kolvetnunum er sykur og hve mikill hluti af fitunni er mettaðar fitusýrur. Þá skal einn- ig koma fram magn af trefjum og natríum og stundum einnig magn vítamína og steinefna. Orkan er gefin upp í kílókaloríum (kkal) og kílójoulum (KJ). Þetta eru tvær mismunandi einingar fyrir orku, 1 kkal jafngildir 4,2 KJ. Flest- um hér á landi er eðlilegra að nota kkal en þær eru í daglegu tali nefndar kalóríur eða hitaeiningar. Til að gefa vísbendingu um hversu mikla orku við þurfum má ætla að meðalorkuþörf kvenna sé 2000 kílókaloríur á dag en 2700 kíló- kaloríur fyrir karla. Orkuefnin eru þrjú: Kolvetni, fita og prótein. Jafnframt notar líkam- inn það síðasttalda til að byggja upp vöðva. Hluti af kolvetnunum getur verið sykur en það er einföld gerð kolvetna sem hefur þann ókost að vera bætiefnalaus og stuðla að tannskemmdum. Sumar trefjar eru líka kolvetni en þar sem þær gefa að öllu jöfnu ekki orku eru þær ekki taldar með kolvetnun- um. Trefjar hafa ýmiss konar hlut- verki að gegna t.d. vinna sumar þeirra gegn hægðatregðu en aðrar stuðla að lækkun á blóðfitu (kólesteróli í blóði). Fitan getur bæði verið hörð eða mjúk viðkomu. Fita sem inniheldur mikið af mett- uðum fitusýrum er hörð. Sem dæmi um harða fitu má nefna tóig en matarolía er mjúk. Astæðan fyrir því að mettaðar fitusýrur er sér- staklega tilgreindar í merkingu matvæla er sú að mikil neysla á harðri fitu getur stuðlað að aukinni blóðfitu. Aukin blóðfita er svo einn áhættuþáttur fyrir hjarta- og æða- sjúkdóma. Ef bætiefni, vítamín og steinefni, eru í matvörum svo nokkru nemi er heimilt að merkja þau á umbúð- ir. Hægt er að gefa þau upp sem hundraðshluta af ráðlögðum dag- skammti, RDS, sem er það magn bætiefnis sem á að fullnægja þörf- um alls þorra heilbrigðs fólks. Natríum, sem stundum er nefnt í Innihald: Sykur, maísmjöl, kakóduft, síróp, hveitisterkja, baðmullarfræolía og sojaolía (hertar að hluta), salt, frúktósi, litarefni, (E162, 150), sýrur(E341b, 339c), lyftiefni (E500), C-vítamin, bragðefni, sink, járn, níasin, Bg-vitamín, B-i-vítamín, B2-vítamin, fólasín, Bi2-vítamin, þráavarnarefni (E321). Nýmjólk, gerilsneydd, fitusprengd Næringargildi í 100 g: Orka 280 kJ/67 kkal Prótein 3,4 g Kolvetni 4,5 g Fita 3.9 g %Rns* B2-vítamín 0,16 mg 10,0 Kalk 114 mg 14,3 Fosfór 95 mg 11.9 * Mlutfall af ráölögðum dagskammti KÆLIVARA 0-4°C HEILBRIGÐISMÁL 3/1996 25

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.