Heilbrigðismál - 01.09.1996, Page 28

Heilbrigðismál - 01.09.1996, Page 28
Pálmi Guðmundsson Er þunglyndi algengt meðal aldraðra? Grein eftir Hallgrím Magnússon Faraldsfræðin er ein af undir- stöðum læknavísindanna. Hún fjallar um hegðun sjúkdóma í hóp- um fólks, meðan aðrir hlutar lækn- isfræðinnar fjalla um hegðun sjúk- dóma í einstaklingunum sjálfum. Hóparnir geta verið mismunandi stórir. Þekking á tíðni og dreifingu sjúkdóma í þjóðfélaginu í heild er oft mjög gagnleg. Skipulag heil- brigðisþjónustunnar verður mark- vissara og árangursríkara ef tekið er tillit til þessara þátta. Tvö helstu hugtökin sem notuð eru í faraldsfræði til að lýsa tíðni sjúkdóma í þjóðfélaginu eru al- gengi og nýgengi. Algengi er skil- greint sem fjöldi sjúkdómstilfella í ákveðnum hópi á ákveðnum tíma. Nýgengi er hins vegar skilgreint sem fjöldi nýrra tilfella á ákveðnu tímabili. Sú tegund faraldsfræðinnar sem lýsir tíðni og dreifingu sjúkdóma í stórum hópum er nefnd lýsandi faraldsfræði en með greinandi faralds- fræði er reynt að leita að orsökum sjúkdóma. Ef sjúkdómurinn hegðar sér á mismunandi hátt milli hópa með mismunandi eiginleika getur það verið visabending um orsök. Þegar um er að ræða geðsjúkdóma er þó sjaldnast um eina orsök að ræða heldur samspil margra mis- munandi orsakaþátta, sem stundum eru kallaðir áhættuþættir. Síðustu áratugi hefur meðalaldur í vestrænum þjóðfélögum verið hækk- andi vegna þess að fólk er almennt eldra þegar það deyr og auk þess hefur ungbarnadauði minnkað. Fyrir tíu til tuttugu árum varð því ljóst að öldruðum átti eftir að fjölga mikið á næstu áratugum. Athyglin beindist ekki síst að geðsjúkdóm- um, fyrst og fremst að heilabilun og þunglyndi. Stjórnmálamenn gerðu sér grein fyrir að hér var um yfirvofandi vandamál að ræða og voru tilbúnir til að styrkja rannsóknir af þessu tagi. Lýsandi faraldsfræði var mest beitt og voru birtar margar vel unnar rannsóknir á þessu sviði. Eft- ir tíu ár mátti segja að tíðni þung- lyndis og heilabilunar hjá öldruð- um væri þokkalega vel kortlögð í flestum vestrænum löndum og einnig sums staðar í Asíu. Fyrir tæpum áratug fór að bera meira á rannsóknum sem voru skipulagðar með það fyrir augum að finna vísbendingar um orsakir eða áhættuþætti fyrir heilabilun eða þunglyndi. Dæmi um þetta eru t.d. rannsóknir þar sem athugað er hvort orsakasamband geti verið á milli Alzheimers sjúkdóms og neyslu fæðu eða vatns sem inni- héldur mikið af áli. Margar rann- sóknir hafa verið gerðar á þessu en menn eru ekki sammála um hvern- ig túlka beri niðurstöður. Hér á landi hafa verið gerðar nokkrar faraldsfræðilegar rann- sóknir á geðsjúkdómum aldraðra og verða helstu niðurstöður varð- andi þunglyndi nefndar hér. Ein stór faraldsfræðileg rannsókn (sjá heimildaskrá) hefur verið gerð hér á landi og vakið talsverða athygli víða um lönd vegna þess að skipu- lag hennar er einstakt og óvíða annars staðar hægt að gera slíkar rannsóknir. Aðaleinkenni hennar var að hún náði til allra á ákveðn- um aldri í heilu þjóðfélagi. I þessari rannsókn var geðheilsa alls fólks á landinu sem fætt var árin 1895,1896 og 1897 skoðuð mjög rækilega, og öllum fylgt eftir í áratugi. Vegna góðrar skráningar féllu sárafáir út úr rannsókninni. Flestar aðrar faraldsfræðirann- sóknir á Islandi hafa miðað að ein- hverju öðru en geðsjúkdómum, en hafa þó að geyma ýmsar upplýs- ingar, sem varða geðheilsu. I hóp- rannsókn Hjartaverndar, hefur ver- ið spurt um þunglyndi, en niður- stöður þeirrar rannsóknar liggja ekki fyrir ennþá. Nýlega hefur verið birt á vegum Heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytisins könnun á heilsufari á öldrunarstofnunum, þar sem spurt var um geðheilsu, en sjúkdómsgreiningar ekki gerðar. Samkvæmt stóru rannsókninni eykst algengi þunglyndis úr rúmum 4% við 61 árs aldur í tæp 9% við 87 ára aldur. Ekki er vitað hvað veldur þessari aukningu en ýmsir ytri þættir, sem geta haft áhrif á þung- lyndi, voru athugaðir. Til dæmis kom í ljós að ekki var munur á al- gengi þunglyndis eftir því hvort fólk bjó í borg eða sveit. Þá kom í ljós sú óvænta niðurstaða að fólk sem bjó eitt var sjaldnar þunglynt en aðrir, en eins og vænta mátti var þunglyndi mjög algengt á stofnun- um. Hins vegar var einmanaleiki algengastur hjá þeim sem bjuggu einir, eins og við var að búast. Þess- ar niðurstöður má túlka á ýmsa vegu. Til dæmis er hægt að líta svo á að fólk sem um áttrætt getur búið eitt sé heilsuhraustara til líkama og sálar en þeir sem verða að vera hjá ættingjum sínum eða á stofnun, og þess vegna sé fólk í þessum hópi sjaldnar með þunglyndi. Algengi þunglyndis hjá fólki á áttræðis- aldri, sem dvelur á stofnun, er hærra en í heimahúsum. Þetta rennir stoðum undir þá tilgátu að 28 HEILBRIGÐISMÁL 3/1996

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.