Samtíðin - 01.06.1937, Side 8

Samtíðin - 01.06.1937, Side 8
4 SAMTÍÐIN w Frá Islendingum í Danmörku Viðtal við Svein Björnsson sendiherra Sú var tíðin, að íslendingar þeir, er fóru lil útlanda, lögðu nálega all- ir leið sina til Danmerkur. Og enda þótt beinar samgöngur séu nú orðn- ar héðan til fleiri landa, leggja þó enn furðu margir „landar“ leið sína til Kaupinannaliafnar. Samtíðinni er kunnugt um, að all- margir íslendingar eru búsettir i Danmörku til lengri eða skemmri dvalar. Höfum vér snúið oss lil Sveins Björnssonar sendiherra og spurt hann tíðindá um þetla fólk og hagi þess. -—• Iive margir íslendingar eru um þessar mundir í Kaupmannahöfn? — í Kaupmannahöfn eru senni- lega 8—900 íslendingar, þ. e. a. s. fólk fætt á íslandi. Sumt af þessu fólki er að vísu horfið íslandi, t. d. konur af islensku hergi hrotnar, en giftar Dönum, fólk með fasta atvinnu, sem dvalist hefir mjög lengi i Kaupmannahöfn o. s. frv. En flest þetta fólk er samt „góð- ir íslendingar“. Það varðveitir móð- urmálið, hefir áhuga á því, sem ís- Jenskt er og fsland varðar, sækir sanikomur íslendinga o. s. frv. Langflestir íslendingarnir í Kaup- mannahöfn eru þar þó ekki langdvöl- um. Mikið er þar af námsfólki. Ekki eingöngu stúdentum við æðri menta- stofnanir, lieldur einnig námsfólki við aðra skóla eða fólki, sem nem- ur eitthvað, annað hvort til bókar Sveinn Björnsson eða handar, eða hvort tveggja. Ýms- ir eru að kynna sér iðnað eða ann- að þess háttar í því skyni að hafa atvinnu af því heima á fslandi sið- ar. Þá eru nokkrir sjómenn. Tals- vert af kvenfólki vinnur á sauma- stofum eða við húsverk. Vinna á saumastofum er frekar illa horguð. Húsaðstoðarstúlkur munu margar hverjar sæta allgóðum kjörum, ef þær eru á annað horð duglegar til slíkra verka. Hér eru gerðar mun meiri kunnáttukröfur t. d. um mat- artilbúning en gert er lieima til slíkra slúlkna. En séu þær dugleg- ar, líkar fólki engu síður við íslensku stúlkurnar en þær dönsku.

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.