Samtíðin - 01.06.1937, Síða 13

Samtíðin - 01.06.1937, Síða 13
SAMTÍÐIN 9 Gunnar Gunnarsson : |Ræða Njáls á Bergþórshvoli [Gunnar Gunnarsson skáld hefir góSfúslega leyft oss að þýða til hirtingar i Samtíðinni ræðu þá, er hér fer á eftir. Er hér um að ræða kafla úr skáldsögu hans: Hvítakristur (Hvide Krist), sem út kom á dönsku árið 1934. Saga þessi varpar ijósi yfir kristnitökuna á íslandi árið 1000 og aðdraganda hennar, og er hún ein af þeim skáldsögum Gunnars, sem ætlað er að gefa heildaryfirlit um sögu íslands i stórum dráttum. Enda þótt eftirfarandi ræða sé lögð í munn Njáli á Bergþórshvoli árið 1000, teljum vér, að hún eigi erindi til íslenskra nútímamanna og það til því fleiri, sem Gunnar Gunnarsson er meira skáld og vitrari maður en svo, að nokkur maður hér á landi hafi efni á þvi að þekkja ekki til höfuðrita hans. En þau eru flest illu heilli óþýdd á íslensku, þó að þau séu þýdd á fjölda menningarmála jafnskjótt og þau koma út og séu lesin með aðdáun af miljónum manna um gervallan hinn ment- aða heim.] — Hafið þið liugleitt nógu ræki- lega, hvað það er, sem við lands- menn óskuni eftir? En líklegt þyk- ir mér, að þeir okkar, sem einhver völd hafa hér í landi (og' fyrir slíku er trúandi) eigi fvrst og fremst að hlíta vilja þjóðarinnar. Sjálfur hef ég engin völd, enda liefi ég aldrei ásælst neitt slíkt. Og það er ekki kvíðalaust, að ég ltefi lofað að koma itingað ásamt vinum mínum. Ég hef því aðeins gert það, að hitl hefði ef til vill verið meiri áhyrgð- arhluti að fara hvergi. Svo segir mér liugur, vinir mín- ir, að hér muni hrátt liefjast óöld í landi, ncma við herum gæfu til að lifa í sátt og samlyndi, að lTér muni renna upp öld hungurs og vígaferla! ... Sjálfur hef ég aldrei orðið valdur að blóðsúthellingum, eins og ykkur er fullkunnugt. Og hvað sem í skerst, liefi ég ekki hugs- að mér að hreyla háttsemi minni i þeim efnum. Þetta má hver sem vill virða mér til bleyðiskapar og álasa mér fyrir það. Hitt væri þó aumur og hégómlegur uppskafn- ingsháttur, ef ég létist vera meira hreystimenni en ég er. Og nú spyr ég aftur: Hver er þá vilji okkar, sem hér sitjum og allra góðra manna á landi hér? Hvað ælli við kjósum okkur fremur en að gerast hoðherar Ijóssins og sannleikans? -----Þetta vitið þið, góðir menn, að er það takmark, sem við stefn- um að. Og við vonum, að afkom- endur okkar eigi sér sama tak- mark. Ég vil ekki fullyrða, að all- ir menn á landi liér hugsi á þessa leið. En því trúrri sem við erum þessari hugsjón okkar, þeim mun fleiri munu fylgja okkur að mál- um. Iíverju mundir þú svara, Run- ólfur Úlfsson, sem kunnur ert fyr-

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.