Samtíðin - 01.06.1937, Qupperneq 15

Samtíðin - 01.06.1937, Qupperneq 15
SAMTÍÐIN 11 eða gjörðir einstakra manna villa ykkur sýn. Ekkert rétllæti veilir heimild til þess að fremja ranglæti og allra sist yfirsjónir annara. ■— -----Fyrir mér er nú svo komið, að sá fjarlægi ljósbjarmi af dög- un, sem ég fann í trú feðra okkar, varð að hábjörtum degi, jafnskjótt sem ég öðiaðist sanna vitneskju um kristna trú. Ég öðlaðist meðvitund um þahn guð, sem ég hafði verið svo liamingjusamur að eiga mér og fylgja, án þess að ég þekti hann, og nú skynjaði ég nálægð hans. Slík rejaisla er óviðjafnanleg. Hún er á við mörg' dapurleg mannslíf. Auk þess hef ég lært að biðja og veit nú, hvað sáluhjálp er. Ég skil, livað það er að opna hjarta sitt fvrir guði og öðlasl frið i lionum. Eins og brjóst mitt andar að sér lofti, and- ar sál min að sér meðvitundinni uin guð. Síðan þetta gerðist, skil ég ekki, að ég skyldi geta lifað nokk- urt andartak án hans — án þess að þekkja hann, að ég skyldi ekki veslast upp. — —■ — Hvernig á ég sem heiðarlegur maður að segja annað en það, sem er sannast og réttast í þessum efnum? Ætti ég að leyna aðra mikilvægustu reynsl- unni, sem ég hefi orðið fyrir á æv- inni og því eina, sem getur komið öðrum mönnum að verulegum not- um? Væri slikt ekki sviksamlegt? Það væri sú eina sviksemi, sem eg gæti gerst sekur um. Og hvernig ælti ég að geta lifað í guði og ver- ið handgengnari honum en nokk- urri jarðneskri veru, ef hann væri ekki til, og væri ekki hið eina mikil- væga — sannleikurinn og lífið? .... Þessu beini ég til ykkar, sem einn- ig eruð ærlegir menn og hreinskiln- ir, og ég lala frjálsmannlega við ykkur og' af hjartans instu sann- færingu. Gissur og Hallur skilja mig að minsta kosti og vita, við livað ég á. Þeir geta borið orðum mínum vitni. Og' nú spyr ég ykkur og einkum þig, Runólfur Úlfsson: Þekkir J)ú slíkan guð? Finnur þú til návistar Óðins eða nokkurs ann- ars af Ásum, rétt eins og þeir væru loftið, sein þú andar að þér? Finn- ur þú hinn heilaga mátt Þórs svo greinilega i armi þér, að þú þorir að ljósta með honum------------jafn- vel son þinn? Eða livort ert þú, sannleikselski maður, óvitandi þess, að sá dauðdagi, sem sonur þinn kann að verða fyrir í þessu sam- bandi, stafar frá armi þínum? ■— -----Þú svarar engu------------eins og ég vissi. Vafalaust liefur þér orðið þetta ljóst. Ef til vill hefur þú afráðið að bera ábyrgð á þessu. Sú ábvrgð er þung, og þú níunt ekki finna til þunga hennar fyr en siðar, þegar fánýtið og meira að segja skaðsemin af hinni þrjósku- fullu mótspyrnu ykkar er farin að gera vart við sig. Og þó get ég sagt þér það, Runólfur Úlfsson, að þú þekkir okkar guð ósjálfrátt, og án þess að þú viljir við það kannast. Þegar þú hefur gleymt þér alger- lega og nálgast í sannri lotningar- auðmýkt guði þína í hofinu, héfur hann verið lijá þér, og þú hefur skynjað návist hans. Ef þú þektir hann núna á sama hátt og ég, og ef sonur þinn þekli hann, mundu þið vera sameinaðir í honum og

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.