Samtíðin - 01.06.1937, Page 18

Samtíðin - 01.06.1937, Page 18
14 SAMTÍÐIN Ssensk leikhús- | Eftir Margareta Bergman-Malmgren J starfsemi [Höfundur þessarar greinar er sænsk leikkona, búsett í Stokkhólini, og hefir hún samið greinina að tilhlutun Samtíðarinnar]. I Stokkhólnii eru núna starfrækt tólf leikhús. Eru tvö þeirra lýrisk, í fimm eru ýmist sýnd leikrit al- varlegs efnis eða gamanleikir o. þ. h., en í fjórum eru sýndir skop- leikir og annars konar léttmeti. Yirðulegustu leikhúsin i höfuð- stað okkar Svíanna eru: Operan, Dramatiska teatern, Oscarsteatern, Komeditcatern, Blancheteatern og Vasateatern. Glæsilegustu leikarar hér í landi eru þau Tora Teje og fíösta Ekman, sem hæði eru frá- hærir listamenn. Af öðrum leiluir- um má nefna þau Lars Hansson, Márta Ekström. Inga Tidblad, An- ders de Wahl, Olof Winnersirand og Gabriel Alw, sem öll starfa við Dramatiska teatern, og ennfremur má telja þær Alice Eklund og Za- rah Leander. Hvað er upp úr því að hafa, að vera leikari? munu ménn spvrja. Því er þar til svara, að helsta óper- ettuleikkona okkar í Svíþjóð gaf upp til skalts 55 þúsund króna tekj- ur árið 1935. Gösta Ekman mun hafa horið álika mikið úr býtum. Þeir leikarar við Dramatiska tea- tern, sem hæst eru launaðir, fá 20 —25 þús. króna árslaun, en auk þess fá þeir drjúgan skilding fyrir að leika i kvikmyndum og fyrir störf sin í þágu útvarpsins. Ennfremur er þeim borgað sérstaklega fyrir leikfarir um landið eða til annara landa. Aðrir sænskir leikarar munu hafa kaup, sem nemur þetta frá 150 upp í 1000 krónum á mánuði. Hvernig verða menn leikarar í Svíþjóð? Annað livort með þvi að vera teknir sem nemendur í þann eina leikskóla, sem viðurkendur er hér i landi, þ. e. leikskóla Drama- tiska teaterns, eða með því að reyna að fá vinnu hjá leikflokki, sem ferðast um og öðlast þannig næga æfingu. Eu þar sem lítið er nú orð- ið um þess háttar farandleikflokka, er sú leið að heita má lokuð. Að sumarlagi er leikið i skemtigörðum bæjanna, og sjá stjórnir garðanna um þá starfsemi, en leikararnir eru einkum frá leikhúsunum í Stokk- hólmi, Gautaborg og Helsingjaborg. í þessum görðum er leikið 3—4 sinnum á viku, og er efnisvalið og meðferðin á leikritunum hvort tveggj a prýði I egt. Ungur leikari á ekki annars úr- kosta en að ganga á leikskóla Dramatiska teaterns. Þar er lion- um strax gaumur gefinn. Hann fær bráðlega smáhlutverk i útvarps- leikjum. Ef til vill veitir einhver kvikmyndaleikstjóri honum athygli og fær honum hlutverk. Nemand- inn verður að taka þátt í sam-

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.