Samtíðin - 01.05.1941, Qupperneq 7

Samtíðin - 01.05.1941, Qupperneq 7
SAMTiÐIN Maí 1941 Nr. 72 8. árg., 4. hefti ENSIÍUR BÓNDI, I. R. B. Branson að naíni, sem er uppgjafa-herforingi, hefur að undanförnu að verulegu leyti lifað á grasi. Brezka útvarpið frétti um l>etta tiltæki bónda, þótti það nýstárlegt og hafði því tal af honum. Fréttaritari útvarpsins spurði: — Þér álítið þó væntanlega ekki i fullri alvöru, að hægt sé að lifa á grasi? Bóndi svaraði: — Jú, það er mín hjart- ans sannfæring. Mér verður svo gott af því grasi, sem ég borða, að ég óska þess af alhug, að aðrir neyti þessarar fæðu einnig. Gras hefur í sér fólgin öll dýr- mætustu bætiefni fæðunnar, einkum ef menn neyta þess, meðan það er nýsleg- •ð. Tvö síðastliðin ár hefi ég lifað á því mestmegnis, og ég borða æ meira og aieira af því. Arangurinn er dásamlegur. Ég er 'bróttamaður, en flestir á mínum aldri mundu vera hættir að iðka íþróttir, þvi að ég er nú orðinn 67 ára gamall. Og eg nýt lífsins betur á þessum aldri en uteðan ég var ungur. Ég hjóla stundum n-.ílur hvílda.rlaust, án þess að ég finni HI nokkurrar þreytu. Með því að lifa á grasi, spara menn tnikið fé. Ég ét grasið ósoðið og eins °g það kemur fyrir, en vitanlega má mat- reiða það á ýmsa vegu, svo að það verði lystugra. Ég borða grasið með hráum gul- r°tum, sykurrófum og púðursykri, og f'nnst mér það hin Ijúffengasta fæða. Nýsprottið gras er mjög auðugt af »chlorophyl“, en það efni er selt í töfl- Um nú á dögum. Ég get fullvissað yður um, að ef grasát yrði almennt, væri hægt framleiða fjórum til fimm sinnum tneiri náttúrlega fæðu á hverri ekru en nu er gert, með því að rækta þar hveiti. ^egar við hugsum um allan þann fjölda fólks, sem lifir við sult og seyru í ver- öldinni nú á dögum, er auðskilið, hvílíka blessun almenn grasneyzla hefði í för með sér fyrir mannkynið. En einu vil ég vara menn við, mælti hinn enski bóndi að lokum. — Þeir mega ekki ímynda. sér, að þeir geti skyndilega farið að lifa á eintómu grasi. Það væri hin mesta fásinna, að ætla sér að gera það í skjótri svipan, sem hefur tekið mig tvö ár. Menn eiga að venja sig á þetta smám sr.man. Byrjið með því að láta dá- Iítið af grasi saman við salatið yðar næst, þegar þér neytið þess, og yður mun verða gott af því. Dæmi þessa bónda Uefur þótt merkilegt í Englandi, og teljum vér það mjög at- hyglivert. Sjálfsagt hefðu íslendingar fuiðað sig á því fyrir nokkrum árum. En nú er sá skilningur vaknaður hér á landi á hollustu hvers kyns grænmetis, að menn láta frásagnir um grasneyzlu væntanlega ekki koma sér á óvart. Sú kynslóð er horfin, sem leit á íslenzk blá- ber og krækiber eins og hvern annan hégóma, er einungis væri „börnum og hröfnum að Ieik“. Augu vor hafa, sem betur fer, opnazt fyrir notagildi ýmis korar jarðargróðurs til manneldis. Og vonandi eigum vér eftir að hagnýta oss hann í margfalt ríkara mæli en nú tíðk- ast hér á Iandi. Eins og nú standa sakir, leggjum vér Islendingar mikið kapp á að afla heyja að sumarlagi, en Iátum búfé vort síðan með ærnum kostnaði og fyrirhöfn breyta grasinu og heyjunum í kjöt og mjólk, sem hvort tveggja er nota.ð til manneldis. Ef til vill eiga þessir dýru milliliðir milli grængresisins og mannanna eftir að hverfa að nokkru leyti. Úr því mun framtíðin skera.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.