Samtíðin - 01.05.1941, Side 13

Samtíðin - 01.05.1941, Side 13
SAMTÍÐIN guði þóknanlega starfi hér i þessum táradal. Blessuð sé minning hénnar. Svo mörg eru þau orð. Ég legg frá mér hlaðið, og liugur minn reikar til löngn liðinna daga. Myndir fortiðar- innar birtast mér, hver af annari. Ég sé í anda ungan og efnilegan mann, fullan af lifslöngunogbjörtum fram- tíðarvonum. í augum lians logar eld- ur æskumannsins, sem ákveðið hefur að leggja undir sig heiminn. Hann er hár og lierðibreiður, og hann getur sannarlega boðið lífinu hyrginn. Við hlið hans stendur ung og fögur stúlka; það er heitmey lians. Væntan- legnr lifsförunautur. Brosandi breiða l>au faðminn móti lífinu og því ó- komna. Hamingjusól þeirra er hátt á lofti. Svo kemur fyrir smáatvik, sem gjörhreytir lífi þessara ungu elskenda, °g það dregur fyrir sólina. öft og tíð- •un þarf ekki mikið til þess að breyta lífi manna, og að þessu sinni var það aðeins smásaga um unga manninn. I^að skal lekið fram, höfundinum til verðskuldaðs liróss, að sagan var snilldarlega vel samin og har ótví- ræðan vott um mjög fjölbreytt únyndunarafl. Því skal ekki neitað, að ofurlílill fótur var fyrir sögunni, en mikið var hún ýkt. Vandamenn stúlkunnar lögðu trúnað á söguna, og eftir miklar fortölui' sagði unga stulkan skilið við elskhuga sinn. Eftir ketta verða örar breytingar á höguni hans. Það fer að halla undan fæti, og vegurinn niður á við er ávallt mjög gi'eiðfær. Sögurnar um hann verða fleiri og fleiri, og því miður sannari °g sannari. Hamingjan snýr haki við honum, og ógæfan leggur hann í ein- elh. Tækifærum lifs hans fækkar óð- 9 um, og viðreisnarviðleitni hans verð- ur úti í kuldalegu viðmóti samtíðar- mannanna. Svo Iíða árin, eitt af öðru, döpur og tilgangslaus. Það er ekki fyr en löngu seinna, að hann kemst að því, að höfundur sögunnar, sem lagði líf hans í rúst, heitir Hlaðgerður Agnars. í fyrstu á hann hágt með að trúa þessu, en sannanirnar revnast óhrekjandi. Hann veit ekki til þess, að hann hafi nokkurn tima gert á liluta þessarar konu, og þvi hugul- samara er það vitanlega af henni, að taka hann að sér, alveg vandalausan. í augum hennar hlýtur árangurinn að vera glæsilegur. Og vonandi spillir það ekki neitt sigurgleðinni, þó að skiptar skoðanir geti verið um það, hve vönd lnin hafi verið að vopnum sínum. Takmarkið Iielgai- meðalið. Það eru unnir margs konar sigrar i lífinu, en liver sigur táknar ósigur einhvers annars. Það er hið sígilda Iögmál. Jæja, nú er hún dáin, blessuð manneskjan, svo að það er ekki vert að lala illa um hana. Ég samlagast umhverfinu við það, að lítill, krókloppinn dréngur býður mér Morning Post. Nei takk. Eg greiði kaffið mittogfer. Róninn kasí- ar á mig kveðju, og ég veiti því at- hygli, að hið óáfenga öl er farið að svífa töluvert á hann. Svo ráfa ég niðnr að höfninni, og ég horfi á skip- in koma og fara. Skip, sem láta úr höfn, vekja útþrá og ævintýralöngun hjá flestum, en á mig hafa þau eng- in áhrif, að minnsta kosti ekki í dag. Ég er svo annars hugar. Ég geri margítrekaðar tilraunir lil þess að útrýma frú Hlaðgerði úr huga mín- um, en það tekst ekki. Klukkan rúm-

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.