Samtíðin - 01.05.1941, Qupperneq 19

Samtíðin - 01.05.1941, Qupperneq 19
SAMTÍÐIN gjöf til alþýðu manna, sem útgáfa Sigurðar Kristjiánssonar á sínum tima. Eigi mun heldur það kapphlaup, sem nú stendur yfir milli fræðimanna í því efni að gera Islendingasögur að b’gi, verða fornbókmenntum vorum vegsauki. Gildi þeirra fyrir framtið- ina fer ekki eftir því, hve mörgum hestburðum oss tekst að lmoða utan i þær af spásögum og hugarórum. Verðmæti hinna fornu bókmennta og allra góðra bókmennta er undir þvi komið, hve vel vér kunnum að liag- nýta þær handa liverri nýrri kynslóð. I þeim lifir sál þjóðarinnar og við þann hrunn eiga börnin að svala þorsta sinum. Farið er að halda því fram af ýms- Uin, að börnin fæðist nú orðið svo heimsk, að þeim verði ekkert gott kennt. Þessu mun nú, sem betur fer, ekki vera svo háttað. Börnin eru ekki i skuld við oss, heldur erum vér i skuld við börnin. Vér höfum gert þau niunaðarlaus á heimilum með því að fela skólunum andlega velferð þeirra að öllu leyti. Vér höfum selt sál heim- ilanna fvrir alls konar félagsskapar- °g skemmtanabraml utan þeirra, og vér höfum gleymt því, að á oss livíla skyldur, sem enginn ber, ef vér ber- »ni þær ekki sjálf. Vér skulum því hætta að álasa hlöðunum, útvarpinu og skólunum, en tökum sjálf til starfa. Vér skulum festa oss í minni, að til er fagurt iungumál, sem, heitir íslenzka. Vér skulum hlusta eftir hljómi þess i setningum norrænna frásagna, i vis- Um og vísnabrotum, i þjóðsögum og ialsháttum. Vér eigum jafnt að hlusta 15 á gamla og unga og skerpa hugsun vora og dómgreind um allt, sem að málinu lýtur. Þá mun þess ekki langl að bíða, að talað verði og ritað, jafnt af Iærðum og leikum, fegurra mál og auðugra en nokkru sinni áður í landi voru. Krossgáta nr. 8 @ct (<?>© 2 3 4 m m 5 M. 6 W3, 7 8 9 c€>® m. Ío II 12 13 m 14 15 ctct 16 H @>(3) Lárétt: 1. Hagnaður — 6. Skolli (þf.) — 8. Spil —■ 10. Samtenging — 11. Manns- nafn — 12. Forsetning — 13. Á skipi — 14. Gælunafn kvenmanns — 16. Fiskur. Lóðrétt: 2. Mælir — 3. Karlmannsnafn — 4. Vann — 5. í peningshúsi — 7. Frá- rennsli — 9. Norræn goðvera — 10. Málm- ur — 14. Upphrópun — 15. Forsetning. R á ð n i n g á krossgátu nr. 7 i síðasta hefti: Lárétt: 1. Féhús — 6. Gor — 8. Úf — 10. Ár — 11. Herbert — 12. Ör — 13. A — 14. Þrá — 16. Lágna. Lóðrétt: 2. Ég — 3. Holberg — 4. Úr — 5. Búhög — 7. Ártal — 9. Fer — 10 Ára — 14. Þá — 15. Án. Þeir áskrifendur, sem enn eiga eftir að borga árgjald Samtíðarinnar fyrir 1941, erú beðnir að gera það nú þegar.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.