Samtíðin - 01.05.1941, Side 27
SAMTlÐIN
19
chestra. Dómnefndin var ekki gin-
kevpt fyrir því, aö leyfa svertingja-
stúlku að taka þátt i samkeppninni,
en Boghetti hótaði öllu illu, ef Mar-
ian fengi ekki að reyna sig. Svo
fóru leikar, að hún bar glæsilegan
sigur af hólmi í keppninni, og ein-
söngur hennar með hinni frægu
hljómsveit tókst einnig með afbrigð-
um vel. Mátti því virðast, að hún
væri nú, 21 árs að aldri, komin upp
á örðugasta hjallann.
EN NÚ KOMU fimm ótrúlega örð-
ug ár. Ótal vonir brugðust. Lof-
orð voru svikin, samningar voru
rofnir. Söngdómarar Bandaríkjanna
dáðust að visu að rödd Marian An-
dersons, en þeim geðjaðist ekki jafn-
vel að hinni skjótu upphefð þessar-
ui' kornungu negra-söngkonu. Sterk
öfl virtust ætla að leggjast á eitt og
gera úr henni miðlungs-söngkonu.
„Byrgið hana, hún er svo björt ...“
virtist vera hið dulda kjörorð þeirra
manna, sem nú tókust í hendur að
verða Marian þrándur í götu. En
hún var „borin til aðals“ í ríki
söngsins og gat ekki sætt sig við
hlutverk meðalmannsins.
Hún söng að vísu talsvert á þess-
«111 árum, einkum á vegum svert-
*ngja og fékk þetta frá 100—150
dollurum fyrir hverja söngskemmt-
nn- Gat hún því séð fjölskyldu sinni
horgið, en livergi nærri svalað list-
arþrá sinni. Og því ákvað liún að
fara til Evrópu, fá sér frekari til-
sögn í Berlin og halda því næst, ef
iirmt væri, nokkrar söngskemmtan-
n' austan hafsins.
Atta löng haráttuár liðu, þar til
Kirkja Krists
í ríki Hitlers
eftir síra Sigurbjörn Einarsson
er bók, sem allir þurfa að lesa.
Kaupið liana, láður en hýn er
gersamlega uppseld.
| L I T L A |
Blómabúðin
Bankastræti 14.
Sími 4957.
Ávallt smekklegt úrval af
alls konar blómum og krönsum.
— Einnig leirvörur hentugar til
tækifærisgjafa