Samtíðin - 01.12.1949, Side 13

Samtíðin - 01.12.1949, Side 13
SAMTÍÐIN 7 hjá Corbino, sem áður er getið. — Halldór hefur einnig myndskreytt aldarafmælisútgáfuna af Pilti og stúlku og mikinn fjölda barna- og unglingabóka, m. a. Vísnabók próf. Símonar Jóh. Ágústssonar. Þá hefur hann með nokkuð sérstökum hætti puntað upp á hið ágæta blað „Speg- ilinn“, og hafa þær myndir hans yfir- leitt ekki misst marks. Auk mynd- skreytingar bóka og tímarita hefur Halldór málað nokkrar ágætar mannamyndir, en steinarnir, sem nota skal til steinprentunarinnar, standa enn .óhreyfðir í vinnustofu hans, af þeirri einföldu ástæðu, að hann hefur engan tíma haft til að sinna þeirri listargrein. Landslags- myndir segist hann ekki hafa málað, enda kveðst hann ekki hafa mikinn áhuga fyrir slíku. Myndskreyting bóka er ekki alltaf áhlaupaverk. Bak við myndskreytingu ýmissa bóka felst oft geysimikið starf. Það er ekki nóg með, að málarinn þurfi að þaullesa bækurnar og lifa sig inn í efni þeirra, heldur þarf hann, ef um sögulegt rit er að ræða, að gera sér far um að skyggnast inn í for- tíðina, kynna sér rækilega búninga, áhöld, húsakynni, húsbúnað og háttu þeirrar tíðar manna, sem um er að ræða, og sitthvað fleira, sem oft er allmiklum vandkvæðum bundið að skapa sér rétta hugmynd. um. „1 sambandi við barnabækurnar verð ég auðvitað að setja mig í spor yngstu lesendanna, og það á ég nú ekki örðugt með, því ég var öll sum- ur í sveit, þegar ég var barn, svo ég þekki vel sjónarmið sveitabarnanna, þó ég sé fæddur og uppalinn í Reykjavík. En auk þess finnst mér ég ekki vera orðinn það gamall enn, að ég sé með öllu búinn að gleyma eða hættur að skilja hugsunarhátt barna og unglinga!“ segir Halldór og brosir við. Gaman að teikna í „Spegilinn“. „Mér þykir gaman að teikna skop- myndirnar í „Spegilinn“, segir Halldór að lokum. „Líttu í þennan“, bætir hann við og bendir mér á stóran kassa, sem ég hélt fyrst, að geymdi spjaldskrá yfir viðfangsefni, viðskiptamenn eða eitthvað þess hátt- ar. „Þarna geymi ég nú myndasafn af ekki svo fáum „merkum samtíðar- mönnum.“ Við þær styðst ég oftast, þegar ég er að teikna skopmyndirn- ar, því vegna^ annríkis verð ég yfir- leitt að neita mér um þaim munað að sitja niðri í Alþingi eða á öðrum fengsælum stöðum til þess að „stúdéra týpurnar“. gALLDÖR cr raunsæismaður í verkum sínum og náttúrudýrk- andi að vissu marki. Hann er að sjálfsögðu hleypidómalaus gagnvart ólíkustu stefnum í málaralist og segist hafa gaman af vel gerðum myndum, gersamlega án tillits til, hvaða -isma höfundar þeirra fylgi. Hann segir, að nú sé farið að hafa strangara eftirlit en áður með því vestan hafs, hverjir fái að senda myndir á opinberar málverkasýning- ar og ástæðan sé sú, að talið sé, að ýmsir fúskarar og stælingamenn hafi vaðið þar helzt til mikið uppi að undanförnu.

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.