Samtíðin - 01.12.1949, Qupperneq 16
10
SAMTÍÐIN
3. GREIN
BRIDGE
Cftír W). Jóníion
yENJULEGA er tiltölulega auðvelt
að koma auga á einfalda ein-
angrun, og góðir spilamenn eru mjög
fljótir að átta sig á þeim spilum,
en viðvaningum hættir þar oft til að
sjást yfir. Stundum er einangrunin
ein ekki nægileg, því að um leið og
spilarinn einangrar litina, verður
hann að kasta tapslag á tapslag, til
þess að einangrunin beri tilætlaðan
árangur. Hér er eitt dæmi:
A 7-G-5-2
¥ K-G-8-3
♦ Á-D-7
* K-8
1N ,
V A I
6 D-9
¥ Á-D-l 0-9-4
♦ 9-4-2
* Á-10-7
Austur gaf og sagði 1 spaða, Suð-
ur 2 hjörtu, Vestur pass og Norður
4 lijörtu. Vestur spilar út sp. 10,
Austur tekur á ás og kóng og spilar
þriðja spaða, sem Suður trompar, en
Vestur kastar laul'tvisti. Nú tekur
Suður út tvö tromp, og báðir eru
með. Getur nú Suður unnið spilið
örugglega? — Margir viðvaningar
mundu nú spila tígli og svína
drottningunni, og ef Vestur á kóng-
inn þá heppnast þetta og spilið
vinnst, en ef Austur á kónginn, þá
er sjnlið tapað. Góður spilamaður
tekur ekki þessa áhættu, því að hann
sér aðra leið, sem er alveg örugg,
en hún er þannig: Þegar S. hefur
trompað út tvisvar, þá spilar hann
laufkóngi og ás og trompar þriðja
lauf i borði. Nú spilar liann síðasta
spaðanum úr borðinu, kastar tigul-
tvisti í og lætur Austur eiga slag-
inn. Nú er sama, hvað Austur gerir,
því að Suður á alla slagina, sem eftir
eru.
Mjög einfalt, er ekki svo? Jú,
vissulega. En þegar menn eru 'með
spiliu á hendinni og eiga sjálfir að
koma auga á vinningsmöguleikann,
þá getur það orðið þó nokkuð erfitt,
ef þeim hefur ekki verið bent á
þessa spilategund.
DRUKKINN maður í áætlunarbíl
á austurleiðinni spurði bílstjórann,
hve langt væri úr Reykjavík austur
að Kotströnd.
„50 kílómetrar“, anzaði bílstjór-
inn.
Skönnnu seinna spurði farþeginn.
„En hvað er langt frá Kotströnd
til Reykjavíkur?1
„Nú auðvitað jafnlangt: 50 km!“
hreytti bílstjórinn úr sér.
„Ekki þarf það nú endilega að
vera“, sagði sá slompaði með merkis-
svip. „Til dæmis er nákvæmlega
vika milli aðfangadags og gamlárs-
dags, en miklu lengri tími frá gaml-
ársdegi til aðfangadags“.