Samtíðin - 01.12.1949, Side 19

Samtíðin - 01.12.1949, Side 19
SAMTÍÐIN 13 BELGJAGERÐIN JJ-faja oy iJnaíur 4 H.F. 15 ARA JJUMARIÐ 1934 stofnaði vestfirzkur skipstjóri, Jón Guðmundsson frá Hvallátrum í Rauðasandshreppi í Barðastrandarsýslu, ásamt Guðrúnu Vigfúsdóttur, sem nú er búsett í Hveragerði i ölfusi, sameignarfyrir- tæki til þess að framleiða lóðabelgi, fiskábreiður og segl. Jón hafði stund- að sjósókn, frá því að hann var 12 ára gamall (f. 28. júlí 1883), og það bafði ekki dulizt jafnathugulum manni og hann er, að hér var hægt að framleiða lóðabelgi o. fl. nauð- synjavörur íslenzks sjávarútvegs sízt lakari en þær, sem við höfðum áður keypt frá útlöndum. Samkvæmt þeirri óhrekjandi reglu, að íslendingar vita gerzt, hvað þeim hentar sjálfum bezt og hvað bezt hæfir íslenzkum staðháttum, hlómg- aðist starfsemi Belgjagerðarinnar. En Jóni Guðmundssyni þótti verksvið það, er hann hafði í öndverðu fyrir- hugað starfseminni, brátt helzt til þröngt og tók því að færa úr kvíarn- ar og framleiða alls konar fatnað, svo sem vinnu- og skjólfatnað, skíða- föt o. fl. Arið 1941 kvað orðið svo mikið að þess háttar framleiðslu fyrirtækisins, að stofnað var systur- fyrirtækið Skjólfatagerðin h.f., er lýtur stjórn Belgjagerðarinnar, sem einnig var gerð að hlutafélagi. Svo umfangsmikil var starfsemi Skjól- fatagerðarinnar þegar á öðru starfs- ári (1942), að hún framleiddi þá 10500 kápur og frakka. Þá var rúmt um íslenzka iðnaðar- og kaupsýslu- menn og mikill munur að sinna þess háttar starfsemi eða í þeirri ördeyðu, sem ríkir nú hér á því sviði, sam- tímis því, sem flestar aðrar þjóðir eru í stórkostlegum uppgangi. Er illt til þess að vita, ef Islendingar hafa ekki lag ó því að búa vel sem þjóðar- heild á friðartímum, og verður því vart trúað fyrr en í fulla hnefana. En þegar á það er litið, að ágætt íslenzkt iðnaðarfyrirtæki eins og Skjólfatagerðin h.f. hefur ekki feng- ið efni til að framleiða nema um 600 yfirhafnir á fyrra helmingi þessa árs, er eitthvað bogið við ástandið í ísl. iðnaðarmálum, því að ekki skortir þörfina fyrir vörur hennar. Eftirfarandi tafla sýnir fram- leiðslumagn Belgjagerðarinnar á nokkrum árum: Ár - Stykkjatala 1936 ................. 6475 1938 ............ um 12000 1942 ............ um 36000 1945 ............... 45598 1946 ........... um 37000 1947 ........... um 23000 1948 ............... 16154 Taflan sýnir glöggt, að síðan styrjöldinni lauk, hefur framleiðsla þessa ísl. iðnaðarfyrirtækis dregizt óhugnanlega saman vegna þess eins, að ekki hafa fengizt nægileg gjald- eyris- og innflutningsleyfi, einkum

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.