Samtíðin - 01.12.1949, Qupperneq 21

Samtíðin - 01.12.1949, Qupperneq 21
SAMTÍÐIN 15 <- .> AUSTRÆIM ÞJOÐ MEÐ « ^Jamtal /\ex J VESTRÆM SJÓMARMie 2>»L BF UM ÞAÐ bil 20.000 námsmönn- um, sem stunduðu nám við Columbia-háskólann í New York vormissirið 1948, voru 30 Filippsey- ingar. Af þessum mönnum vakti einn, Rex D. Drilon að nafni, einkum athygli mína bæði sakir mikilla hæfileika og víðtækrar menntunar. Áttum við oft tal saman, og furðaði mig í fyrstu mjög á því, hve mikið hann vissi um lsland og Islendinga. En þegar á það er litið, að Drilon er bæði kennari 9g blaðamaður, sem hafði í smíðum doktorsritgerð um alþjóða-utanríkismál, verður skiljan- legra, að hann sé fjölfróður, enda má segja, að hann hafi varið mestum hluta ævi sinnar í það að afla sér alhliða menntunar. Hann hefur leyst af hendi B. A. próf í ensku við Linfield College i Oregon, hlotið sama lærdómsstig í blaðamennsku við Missouri-háskólann, en seinna lauk hann meistaraprófi í þeirri grein við sama háskóla. Að þessum prófum loknum gerðist Drilon kenn- ari í blaðamennsku við Centi’al Philippine College í Iloilo-borg heima á Filippseyjum og rit- stjóri Iloilo Times, sem er dagblað, gefið út á ensku þar í bæ. Frá þess- um störfum, svo og konu sinni og börnum hafði liann nú liorfið um skeið til þess að ljúka æðsta lær- dómsprófi, sem háskólar geta veitt, doktorsprófinu. Sakir aldurs, yfir- burðahæfileika og menntunar var Drilon sjálfkjörinn forustumaður landa sinna í stúdentasamtökum þeirra i New* York. Eitt sinn, er við hittumst, bað ég hann að segja les- endum „Samtíðarinnar“ i stuttu máli eitthvað frá Filippseyjum og í- búum þeirra. Varð hann fúslega við þeim tilmælum. Filippseyingar börðust gegn Japönum í síðustu heimsstyrjöld, og tókst tæpum 50.000 hermönnum þeirra ásamt 15.000 bandarískum hermönnum að halda hálfri milljón Japana í skefjum í sex mánuði. Álitið er, að orrustan mn Filippseyjar, sem svo hefur verið nefnd, hafi foi'ðað Ástralíu frá innrás af hálfu Japana. En Ástralía varð síðar aðalherstöð Bandaríkjanna í viðureign þeirra við Japan. Japanar náðu að visu Filipps- eyjum á vald sitt, en þeim tókst aldrei að lama viðnámsþrótt Filipps- eyinga né koma i veg fyrir leyni- starfsemi okkar gegn þeim. Sjálfur var ég liðsforingi í þeirri „neðan- jarðarbaráttu41, sem lauk með því, að Bandaríkjaher leysti okkur undan ánauðaroki Japana. Hve margir eru íbúar Filipps- eyja? r— á Filippseyjum búa 19.000.000 manna. íbúar eyjanna eru af ýmsum ættum, en yfirgnæfandi meirihluti þeirra er af Malajakyni. I stríðinu kvæntust fjölmargir amerískir setu- liðsmenn Filippseyjastúlkum. Við Filippseyingar erum ekki haldnir

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.