Samtíðin - 01.12.1949, Side 24

Samtíðin - 01.12.1949, Side 24
18 SAMTÍÐIN sem eru farin að ganga í skóla, þá eru þau alltaf að koma og fara. Maður þarf sífellt að vera heima, til þess að sjá um, að þau fái eitt- hvað að borða og drekka, annars eru þau viss með að éta eintómar kökur og sætabrauð, og í því er nú lítið gagn fyrir börn, sem eru að vaxa. En oft hef ég nú hugsað til þín, Gerða mín. Þú ættir nú að láta verða af því því að bregða þér inn eftir til mín eitthvert kvöldið.“ „Já, það segirðu satt. Ég má til með að láta verða af því að koma til þín í fína húsið. Þetta dugir ekki. Maður verður eins og álfur út úr hól, fer aldrei neitt og veit ekki neitt. Segirðu annars nokkuð í fréttum?“ „Það er nú anzi lítið. Ég var að koma vestan úr bæ.“ „Nú, er nokkuð lilægilegt við það? Þú kímir.“ „Já, það liggur við. Það var, skal ég segja þér, verið að auglýsa kápu í Vísi. Þú veizt, hvað vont er að fá efni í þær, og tilbúnar eru þær ekki kaupandi, svo ég hugsaði með mér, að það gerði svo sem ekkert til, ])ótt ég færi og liti á hana. Ég arka af stað í þessari líka úrhellisrign- ingu, en nú er auðvitað stytt upp fyi'ir löngu, og ég er að draslast með regnhlíf.“ „Þú ert líka í bomsum, sé ég. Hvar gaztu náð í þær?“ „En í bomsuslagnum fræga! Ég lenti í honum um daginn. Það var nú meiri slagurinn, sá skemmti- legasti, sem ég hef lent í á þessum síðustu og verstu timum, þegar ekk- ert, sem mann vantar, fæst nema í biðröðum eða gegnum kunnings- skap. Þar voru sumar svo sniðugar að hafa með sér bita, því löng var biðin, vantaði bara kopp! Enda kom það sér nú að sögn illa fyrir eina.“ „Ég er svo aldeilis hissa, hvernig fólk getur hagað sér, en hvernig var þetta með kápuna vestur í bæ?“ „Jú, það var þannig, að ég fór langt vestur í bæ, vestur undir sjó, alla leið vestur í Skjólin, eða hvað þau nú heita. Annars varð ég nú ekki vör við neitt skjól þar! Ég í’íJmma strax á húsið, þar sem kápan var til sýnis og sölu, vind mér inn fyrir og ætla upp stigana, því þetta var á þriðju hæð. Nei, takk, góða mín, ég komst ekki langt, því þar var biðröð niður alla stiga. Þá varð ég alveg ákveðin, að engin skyldi fá kápuna nema ég, og ég beið og beið og smámjakaði mér upp þrepin. Fyrst hélt ég, að ég hefði villzt, því allir þögðu. Ég hugsaði með mér: Almáttugur, ég skyldi þó ekki hafa farið í skakkt hús og hérna væri húskveðja einhverrar góðrar konu, en ekki kápubiðröð! En svo liðkuð- ust málbeinin smám saman, og þá var ég viss um, að ég væri mann- eskja á réttum stað. Þar var talað um biðraðir og skömmtun og Guð veit hvað, en enginn minntist á káp- una. Mig grunar, að það hafi ekki allar verið vissar um, eftir hverju var hcðið, heldur slæðzt með í hóp- inn af forvitni! Loksins kom svo röðin að mér. Ég þóttist vera þræl- heppin, að engin skyldi vera búin að kaupa kápuna. Þeim hefur fund- izt hún of stutt, hugsaði ég með mér, og sumar voru ])annig á sig

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.