Samtíðin - 01.12.1949, Page 26
20
SAMTÍÐIN
að slóra svona. Ég lofaði lienni því
upp á æru og trú, að ég skyldi koma
til hennar eitthvert kvöldið, og með
það kvöddumst við. Framh.
Nýjar norskar
bækur
GYLDENDAL NORSK FORLAG í
ósló hefur sent „Samtíðinni“ þessi
þrjú merkisrit:
NORGES HISTORIE I—II eftir
ANDREAS HOLMSEN og MAGNUS
JENSEN. Norðmenn voru ekki fyrr
lausir undan ánauðaroki stríðsár-
anna, en mikil bókagerð Iiófst lijá
þeim, þrátt fyrir pappírsskort og
aðra örðugleika. Þessi nýja Noregs-
saga er 1284 bls. með um það bil
500 ágætum myndum, senr Arnold
Eskeland héfur valið. Verkið er
byggt á eldri útgáfu, en stórum auk-
ið og endurbætt og nær fram yfir
hernámið. Rókin er alþýðleg, en
fullt tillit er tekið til nýjustu vís-
indarannsókna og nútíma sagnfræði-
tækni. Fyrra bindið, samið af A.
Holmsen, nær fram til einveldisins
1660, og er landnáms Islands og
forníslenzka þjóðveldisins minnzt
þar á bls. 156—162. M. Jensen hefur
samið seinna bindið, og vekur frá-
sögn hans um baráttu Norðmanna
á hernámsárunum sérstaka athygli,
enda var hann þátttakandi í henni.
ANTON R0NNERERG: NATIO-
NALTHEATRET GJENOM FEMTI
AR. Um það leyti, sein verið er að
hefja rekstur þjóðleikhúss hér á
landi, kemur út í Noregi þetta mynd-
arlega rit um hálfrar aldar starf
Heimilisspilið
er hentug jólagjöf.
Gefið HEIMILISSPILIÐ.
Spilið HEIMILISSPILIÐ.
Heildsölubirgðir:
€Á BLnáon & Co. L/
Hamarshúsinu.
Mtafals birta
er best.
Framkvæmum
raflagnir
og breytingar
í verksmiðjur,
hús og skip.
h.f.
Raftækjavinnustofa
og verzlun
Vesturgötu 2. Sími 2915.
Símnefni: Rafall.