Samtíðin - 01.12.1949, Síða 27
SAMTÍÐIN
21
norska þjóðleikhússins, samið aí
fyrrv. forstjóra þess. Af þeirri sögu
má sitthvað læra, og mikill fróð-
leikur er þar saman kominn um
margt það, er varðar rekstur leik-
hússins, og ýtarlegar frásagnir eru
um afrek ' leikaranna. Leikhúsið
barðist framan af í hökkum fjár-
hagslega, en hefur alla tíð verið eitt
höfuðvígi norskrar hámenningar
eins og vera ber. Það hefur notið
forustu ýmissa ágætra leikhússtjóra,
og má í því sambandi einkum nefna
Bj0rn Bjornson, er gegndi forstjóra-
starfinu fyrstur allra eða á árunum
1899—1907 og mótaði þar með starf-
semi leikhússins öllum öðrum frem-
ur. Hann var aftur leikhússtjóri
1923—27. Minningarritið er prýtt
fjölda mynda.
HABBY FETT: PA KULTUR-
VERNETS VEIER. Þetta eru endur-
minningar hins aldurhnigna norska
þjóðminjavarðar Harry Fetts. Fyrri
hluti bókarinnar er ekki ævisaga,
heldur eins konar aldarafmælisrit
fornminjafélagsins: Foreningen til
norske Fortidsminnesmerkers Bevar-
ing. Það er ekki fyrr en á bls. 145,
að æviminningar höfundar hyrja,
og að bókarlokum er gert ráð fyrir
framhaldi á þehn, enda er höf. þá
-ekki kominn lengra en það, að hann
er að taka við þjóðminjavarðarstarf-
inu. Fett er mikilvirkur ríthöfundur,
og segja má, að ævisaga hans sé
snar þáttur úr norskri menningar-
sögu seinasta mannsaldurs. Frásögn-
in nær langt út fyrir endimörk
Noregs, því að spor höf. hafa legið
víða um Evrópu.'
iUmenna fasteignasalan
(Brandur Brynjólfsson)
Austurstræti 9. — Sính 81320.
Annast kaup á:
fasteignum, skipum, atvinnufyrir-
tækjum o. s. frv.
Bílamiðlunin
(Brandur Brynjólfsson)
Austurstræti 9. — Sími 81320.
er miðstöð allra bílakaupa.
Viðtalstími beggja fyrirtækjanna
er kl. 10—12 og 1—5 alla virka
daga nema laugardaga kl. 10—12.
Jk
uíffafynaverzlun
L
kristjáns
Siggeirssonar
Laugaveg 13,
Reykjavík.
Vönduð húsgögn
prýða heimilið.
Timbur til húsgagna og
húsabygginga
ávallt fyrirliggjandi.