Samtíðin - 01.12.1949, Blaðsíða 29

Samtíðin - 01.12.1949, Blaðsíða 29
SAMTÍÐIN 23 „Rómaninn vakti blátt áfram of- boð. öll blöðin fyrirdæmdu bókina, kölluðu hana siðspillandi, eitraða, líkþráa, og mörg þeirra réðu til að gera útgáfuna upptæka. Walter Pater stóð fyrir þeim fáliðaða hóp andans manna, sem sáu í þessu verki nýja og glæsilega hlið á nýju og glæsi- legu skáldi, en með hinum loflega ritdómi sínum vann hann ekki ann- að á en að gei’a sjálfum sér tjón, þótt talinn væri fastur í sessi, einn hinn nafnfrægasti maður í kennara- liði Oxfordháskóla. En eitt hafði Oscar Wilde unnið á, og það framar ölliun öðrum listamönnum, sjálfum Lord Byron ekki undanskildum: að \rera á hvers manns vörum í Lond- on. Fáeinir elskuðu hann, margir óttuðust hann, flestir liötuðu hann en allir töluðu um hann. Hann stóð nú þarna í raun réttri, eins og hann hafði óskað að sjá sjálfan sig, umvafinn bjarma syndar og töfra.“ („Iðunn“ 1929, bls. 200). Myndin af Dorian Gray er saga, sem ógerningur er að endursegja, jafnvel þótt rúm leyfði. Séra Sig- urður Einarsson, einn hinna ein- lægustu aðdáenda Wildes í hópi þeirrar æsku, sem áður var getið, hefur nú goldið hinum mikla írsk- enska töframanni sitt með því að íslenzka tvö af verkum hans og rita auk Jiess snjalla grein um Wilde í'raman við þýðinguna á Salóme. Pessar þýðingar séra Sigurðar eru gerðar af næmum skilningi og eru víða með þeim glæsileik, er einkenna stíl Jiýðandans og tök hans á ís- lérizku máli. Timburverzlun Árna Jónssonar Hverfisgötu 54. Simi 1333. Símnefni: Standard. Venjulega fyrirliggjandi alls konar timbur, hurðir, gluggar og listar. S. Sk.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.