Samtíðin - 01.11.1953, Blaðsíða 11
SAMTÍÐIN
7
það séu yngri. Mönnum hefir verið
ljóst, hver var eiginleg merking orð-
anna í slíkum samböndum. Síðan gat
einhver Islendingur gert orðtakið
koma eftir dúk og’ disk og notað það
í þeirri merkingu, sem það hefir enn.
Orðtakið kann þannig að vera gert
á Islandi, þótt efniviður sé erlendur.
♦ Það er sagt: ♦
að engir tveir menn séu eins og að
báðir séu fegnir því.
♦
að menn séu orðnir miðaldra, þegar
þeir fara að missa hárið, tennurn-
ar og tálvonirnar.
♦
að nú verði menn 30 árum eldri en
áður, til þess að þeim endist aldur
til að borga skattana sína.
♦
að erfiðast af öllu sé að vera eðli-
legur í framkomu.
♦
að ástin geti ekki neitað ástinni um
neitt.
♦
að því betur sem bækur seljast, því
verri séu þær.
Þeir örfáu áskrifendur, sem enn eiga
ógreitt árgjald „Samtíðarinnar“ eða óinn-
leysta póstkröfu, eru vinsaml. beðnir að
gera það nú þegar.
KJÖT & GRÆNMETI
er sú matvöruverzlun höfuðstaðarins,
sem fullnægir bezt kröfum nútímans um
hreinlæti, hollan mat og góðan.
Snorrabraut 56 (Símar 2853 og 80253) —
Nesveg 33 (Sími 3506).
Frá Þjóðlelkhúsinu
FYRSTA NÝJA viðfangsefni Þjóðleik-
hússins á þessu leikári var „Einkalif“
(Private Lives) eftir Noel Coward, sem
er heimskunnur fyrir leikrit, kvikmyndir
og leikstarfsemi, enda þótt hann sé fyrst
og fremst eftirlætisgoð Lundúnaborgar.
Coward er bráðsniðugur fjölhæfnismaður
í listrænum skilningi, en leikrit hans eru
hvorki það stórbrotinn skáldskapur né
algild mannleg tjáning, að þau öðlist livar-
vetna föðurland, þar sem þau eru flutt i
þýðingu. Og þar sem Reykjavík er ekki
London, leikarar okkar ekki Englending-
ar og Hverfisgatan ekki Haymarket, skort-
ir nokkuð á, að andi Covvards hafi svifið
yfir sýningunum á „Einkalifi". Sigurður
Grímsson hefur þýtt leikritið á íslenzku,
Gunnar R. Hansen annazt leikstjórn, sem
sýnist vera ákaflega hnitmiðuð. Leikend-
ur eru 5, allir góðkunnir, og vekur einn
þeirra, Hildur Kalman, undrun, því að
bæði gervi hennar og fas virðist fremur
í ætt við Grænland en Frakkland. Hins
vegar vekur Róbert Arnfinnsson athygli.
Hann er nú mjög vaxandi leikari. Myndin
er af honum i lilutverki Victors Prynne
og frú Ingu Þórðardóttur i hlutverki
Amöndu, konu hans.