Samtíðin - 01.11.1953, Blaðsíða 12

Samtíðin - 01.11.1953, Blaðsíða 12
8 SAMTÍÐIN ■ iffil 175. SAGA SAMTÍÐARINNAR HlISliffl j\ st í wn alutn EFTIR NATHAN ASCH Niðurl. HON VAR í náinni vináttu við nokkrar konur hjá sendiráðunum, og það var farið að bjóða honum í garð- samkvæmi sendiráðanna. Hann var þá í röndóttum buxum, og hún var öll í knipplingum og með barðastóran hatt. Þarna var hljóðfærasláttur og veitt kampavín, og stundum bar það við, að háttsettur embættismaður vék sér brosandi að henni og sagði: „Getið þér séð af honum eitt andar- tak?“ Og var síðan vanúr að víkja honum afsíðis og segja: „Ég hef mjög mikinn áhuga fyrir því starfi, sem skrifstofa yðar ^iefur með hönd- um. Mér er sagt, að þér séuð aðal driffjöðrin þar“. Hann liitti ekki neinn af sinum gömlu vinum nema Jerry og konu hans. En dag nokkurn sagði Jei’ry honum, að þegar þessu starfi væri lokið, mundi hann að öllum líkind- um verða sendur til að taka að sér starf í Suður-Ameríku og að geysi- mikil áherzla hefði verið lögð á, að einmitt hann yrði sendur þangað. Svo var að sjá, sem einhverjum af hinum nýju kunningjum hans væri mjög annt um velferð hans. Hann fór nú að hugsa um að staðfesta ráð sitt og tryggja sér framtíðarstöðu hjá ríkisstjórninni. Og hvenær sem annaðhvort þeirra fór framhjá fasteignasöluauglýsingu, voru þau vön að nema staðar og skoða sýning- arhúsið. Dag nokkurn var honum mikið niðri fyrir, og þá sagði hann við hana: „Ég skal segja þér, að í skrif- stofunni hjá okkur erum við loksins búnir að safna nægilegum upplýs- ingum til þess að geta sagt fyrir, hvað gerast muni. Ég býst við, að ég muni fara að gera mína skýrslu". Hún sagði: „Það er dásamlegt. Þá skulum v.ið bara hittast tvisvar í viku“. Daginn eftir sendi hún honum vönduð skrifborðsáhöld að gjöf. Það kvöld sagði hann: „Reyndu að gleyma mér, þegar við erum ekki saman, og blessuð farðu þá út og skemmtu þér“. Hún sagði: „Hvernig heldurðu, að ég geti það?“ Hann sat heima, allur á kafi í töl- um, og reyndi að þugsa ekki um hana. Þá hringdi síminn. Hún sagði; „Mér þykir það leitt, en ég finn það á mér, að verkinu miðar ekki vel hjá þér. Get ég nokkuð hjálpað þér?“ Hann sagði: „Ég er ekki að vinna. er bara að eyða tímanum. Við skulum heldur koma út að aka“. Þau óku sem leið liggur eftir Virg- iníuríki. Rílljósin vörpuðu skærri birtu á veginn, sem kom á móti þeim, og há draugaleg tré liðu fram- hjá til heggja lianda. Hún sagði lionum enn einu sinni frá hinni dap- urlegu bernsku sinni í tóntegund, sem virtist ekki ætluð honum einum, heldur fyllti rödd hennar allan bíl- inn. Hún lýsti æsku sinni á vestur- ströndinni, sagði frá veikri móður sinni, sem reyndi að stjórna leigu- lierbergjahúsi í Seattle og reyndi að leyna hóstanum, meðan maðurinn

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.