Samtíðin - 01.11.1953, Blaðsíða 24

Samtíðin - 01.11.1953, Blaðsíða 24
20 SAMTÍÐIN húsinu í þvílíku ofboði, að hann mundi aðeins óljóst eftir götudyrun- um, malbornum akveginum heim að húsinu og lokunni á garðshliðinu sem áföngum á flóttanum. Hjólreiðamað- ur, sem kom á móti honum úti á þjóðveginum, varð að hjóla heint inn í limgirðinguna ,til þess að forð- ast yfirvofandi árekstur. „Jæja, þá erum við komnir aftur,“ sagði maðurinn með hvítu regnkáp- una, um leið og þeir gengu inn um garðdyrnar. „Við erum sannarlega leirugir upp fyrir haus, en að mestu leyti orðnir þurrir. Hver var það, sem hentist út í þessu feikna ofboðf, Jiegar við komum ?“ „Mjög svo kyndugur náungi, ein- liver Nuttel,“ svaraði frú Sáppleton. „Hann gat ekki um annað talað en veikindi sín, og svo hljóp hann á dyr, þegar þið komuð, án þess að láta svo lítið að kveðja eða afsaka sig einu orði. Maður skyldi nærri því halda, að hann hefði séð draug.“ „Ætli það hafi ekki verið liundur- inn, sem skaut honum skelk i bringu,“ sagði unga stúlkan með hægð. „Hann sagði mér, að hann væri alveg dauðhræddur við hunda. Það eltu liann einu sinni tveir mannlausir hundar í kirkjugarði austur í Ind- landi, skammt frá Gangesfljótinu, og hann varð að hírast heila nótt niðri í nýtekinni gröf, meðan kvik- indin urruðu beint fyrir ofan höfuðið á honum og yggldu sig, svo að froðan vall út úr kjöftunum á þeim. Það þarf nú ekki meira til að gera fólk taugaveiklað." Hryllilegar sögur voru sérgrein þessarar ungu stúlku. ESSO EXTRA MOTOR OIL: (fmuAn/jUjS<>é£uAJuaA. mlu tfejhzV HREINSAR, þ. e. stöðvar myndun á sóti og öðrum óhreinindum frá eldsneytisbrennslunni. HEFUR HÁMARKS VIÐNÁM gegn sýringu og ryði. HEFUR HÆSTU SEIGJUGRÁÐU, þ. e. tekur minni breytingum við hita og kulda en nokkur önnur bifreiðasmurningsolía. ESSO EXTRA MOTOR OIL FÆST VIÐ ALLA ESSO BENZÍNGEYMA Á LANDINU. Látið Esso Extra vernda bifreiðina. Olíufélagið h.f. REYKJAVÍK. — SÍMI: 81600.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.