Samtíðin - 01.11.1953, Side 14

Samtíðin - 01.11.1953, Side 14
10 SAMTÍÐIN Kvöldið eftir var hún í livitum samkvæmiskjól, skreyttum rauðum rósum. Hvert mannsbarn í veitinga- húsinu starði á hana, og þegar liann sagði henni, að hún væri falleg, mælti hún: „Ég er að halda mér til fyrir þér. Ég elska þig.“ Þau dönsuðu, þangað til hljómsveitin hætti að spila. Á heimleiðinni í bílnnm hjúfr- aði hún sig að honum og virtist ekki anda, fyrr en þau komu heim að húsinu, þar sem hún bjó. 1 nokkur kvöld reyndi hánn að þræla skýrslugerðinni áfram, en þá var ekkert lát á eilífum upphring- ingum og bréfum frá henni, og þegar hlé varð á, gat hann ekki annað en verið að hugsa um hana. Hún og kona Jerrys voru orðnar mestu mátar, og hún var alltaf með annan fótinn hjá Jerry-fjölskyldunni. Á endanum hringdi hann til frú Jerry einn góðan veðurdag og sagði: „Viljið þér nu ekki vera svo góðar og tala við hana ? Ég elska hana, en liún er of aðgangs- söm við mig. Það er of mikil ákefð í henni. Hún verður að venja sig á að gefa mér stöku sinnum grið.“ Frú Jerry sagði: Ég held þér ættuð að giftast henni.“ Hann sagði: „Mér finnst eins og hún sé að ögra mér til þess með þvi að miða á mig skannnbyssu.“ „Sennilegast þykir’ mér“, sagði frú Jerry“, að þér komið einn góðan veðurdag að henni dauðri, með byssu í hendinni, á tröppunum hjá yður“. Kvöld eitt færði sendiniaður hon- um þykkt umslag frá henni, og inn- an i því var um það hil fjörutíu blað- síðna bréf með fallegri rithönd. Bréfið hófst á þessa leið: „Elsku hjartað mitt. Ég get ekki sofið“. í því var bæði lýsing á henni sjálfri og á honum og skyldleik þeirra. Við erum úti á straumhörðu vatni, elsk- an mín. Straumurinn hrífur okkur með sér, og hringiðan sogar okkur að sér. Allt í kring eru sandrif og klettar, og ég veit, að þú heldur, að við munum rekast á þá, þegar minnst vonum varir og verða skipreika. En ég fullvissa þig um það, ástin mín, að fram undan er greiðfært“. Seinna í bréfinu voru langar klausur um bernsku hennar og frásagnir um föður hennar. „Ég vildi, að ég gæti Iýst honum föður mínum fyrir þér. Ég man sérstaklega eftir því, hve hrædd ég var alltaf um, að hann muncji koma heim. Jafnvel enn þann dag í dag, þegar dyrabjallan hringir og ég á ekki von á neinum, kólna ég upp við tilhugsunina um, að þetta kynni nú að vera hann.“ Hann lagði hálflesið hréfið á skrifborðið og fór að hátta. En hann gat ekki sofnað. Hann lá lengi kyrr, en þá varð náttmyrkrið að martröð, og hann vaknaði í köldu svitabaði. Hann reis á fætur, og enda þótt koldinunt væri, fann hann upp- kastið að skýrslunni, sem liann var að semja. Hann hélt á því í annarri hendinni, með hinni fann hann bréf liennar og fleygði því í pappirskörf- una. Svo fleygði hann logandi eld- spýtu á eftir því og horfði á, hvernig logarnir brenndu bréfið upp til agna. Að því loknu skreið hann upp í rúm og steinsofnaði. Hálfum mánuði seinna hringdi frú Jerry til hans og sagði: „Þér ættuð að fara og heimsækja hana. Hún er

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.