Samtíðin - 01.11.1953, Blaðsíða 21

Samtíðin - 01.11.1953, Blaðsíða 21
SAMTÍÐIN 17 ■Blilij! 176. SAGA SAMTÍÐARINNAR OPNIJ DYRNAR „FRÆNKA mín kemur eftir andar- tak, herra Nuttel“, sagði mjög svo kotroskin fimmtán ára stúlka. „Þér verðið að reyna að gera yður að góðu að rabba við mig á meðan.“ Framton Nuttel lagi höfuðið i bleyti til að finna viðeigandi setn- ingu, sem gæti kitlað hégómagirnd ungu stúlkunnar án þess að varpa minnstu rýrð á frænku hennar. Sjálf- ur var hann öldungis sannfærður um, að þessar óþolandi heimsóknir hans fyrir siða sakir til bláókunnugs fólks, höfðu afleit áhrif á taugar hans, og þó hafði hann farið hingað til þess að hvíla þær“. „Ég veit, hvernig fer“, hafði systir hans sagt, þegar hann gerði ráðstafanir til að hverfa upp í sveit. „Þú grefur þig bara lifandi þarna 1 sveitinni og talar ekki aukatekið orð við nokkurn mann, og taukaveiklun- in eykst af eintómum leiðindum. En nú skal ég láta þig fá nokkur með- mælabréf til þess fólks, sem ég þekki þarna úti á landsbyggðinni. Ég man ekki betur en að þar væri allra geð- ugasta fólk innan um og saman við“. Framton beið þess með eftirvænt- ingu, hvort frú Sappleton — konan, sem hann átti að heilsa upp á eftir andartak — væri nú ein af þessu geðuga fólki. „Þekkið þér margt fólk hér i sveit- inni?“ spurði unga stúlkan, þegai henni fannst, að þau hefðu setið nægilega lengi án þess að mæla orð. „Ekki nokkra lifandi sál“, sagði Framton. „Systir mín átti hér heima fyrir fjórum árum — á prestsetrinu — og hún hefur látið mig fá nokk- ur meðmælabréf upp á vasann“. Það var allt annað en hrifningar- hreimur í rödd hans. „Svo þér þekkið þá ekkert til frænku minnar?“ hélt sú kotroskna áfram. „Ekki annað en nafn hennar og heimilisfang“, mælti Framton. Hann vissi ekki einu sinni, hvort frú Sappleton var gift eða ekkja. Það var þó eitthvað þarna í stofunni, sem benti til, að þar byggju einnig karl- menn. „Aumingja frænka!“ sagði unga stúlkan. „Nú eru þrjú ár liðin, siðan þessi sorglegi atburður gerðist. Það hlýtur að hafa verið, eftir að systir yðar var hér.“ „Sorglegi atburður?“ spurði Fram- ton. Hann gat alls ekki hugsað sér, að nokkur sorglegur atburður gæti hafa gerzt í þessu unaðslega um- hverfi. „Þér furðið yður ef til vill á því, að við látum dyrnar standa galopnar á októberkvöldi,“ mælti telpan og benti á stórar dyr með frönsku sniði, sem stóðu opnar út að garð- inum. „Það er nú fremur hlýtt, miðað við þennan tíma árs“, sagði Fram- ton“, en koma dyrnar þessum sorg- lega atburði nokkuð við?“ „Það eru nákvæmlega þrjú ár 1 dag, síðan maður frænku minnar og tveir hræður hennar gengu út um þessar dyr og fóru á veiðar. Þeir konm aldrei aftur. Þegar þeir gengu yfir mjTlendið til þess að komast

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.