Samtíðin - 01.11.1953, Síða 26
22
SAMTÍÐIN
ríka 19. aldar skálds eru gædd meira
en litlu lífsmagni, enda hafa Islend-
ingar tekið þeim tveim liöndum. Út-
gáfan frá 1927 seldist skjótt upp, og
sama ætti að verða reyndin á um út-
gáfu MFA. Mat þjóðarinnar á verk-
um G. P. hefur hneigzt að því að
hefja smásögur hans til skýjanna, en
meta kvæði hans sýnu minna. Er því
ekki að leyna, að sem ljóðskáld er
Gestur ekki jafnoki hinna miklu
skálda 19. aldar. Sögur hans eru hins
vegar sumar hverjar bráðsnjallar og
munu lengi verða lesnar, enda þótt
aldarháttur breytist. En hæst finnst
mér hann þó ná í fyrirlestrum sínum
og heztu ritgerðunum. Þar er hann
sannkölluð hrópandans rödd, tíma-
mótamaður í ádeilu sinni. Ég hygg,
að sumir þessir vandlætingarpistlar
muni vekja ekki minni athygli og
aðdáun í dag en gremju þá og skiln-
ingsleysi, sem þeir vöktu, er þeir urðu
fyrst heyrinkunnir. Þegar á það er
litið, hve broslega ósýnt okkur Is-
lendingum er um að þola gagnrýni,
er vandalaust að skilja, hvílík fæð
var á sínum tíma lögð á Gest Pálsson
fyrir hina hvössu, heimsborgaralegu
ádeilu hans. Nú þarf að meta, hverju
þessi víðtæka gagnrýni fékk áorkað,
að hve miklu leyti hún var verð-
skulduð og að hve miklu leyti hún
var ýkt skopmynd, höfundi sínum
til listrænnar fróunar.
S. Sk.
Leitið upplýsinga um vátryggingu hjá
Nordisk Brandforsikring A/S.
Aðalumboð á íslandi, Vesturgötu 7.
Reykjavík. Sími 3569. Pósthólf 1013.
JAFFA
APPELSÍAUSAFIM
ER
DRÝGSTI
OG
LJTFFENGASTI
DRAKKURIAA
HEILDSDLUBIRGÐIR:
Miðstöðin h.f.
HEILDSALA UMBOÐSSALA
Vesturgötu 20.
Sími 1067 og 81438.